Fréttablaðið greindi frá því á forsíðu sinni í dag að Atlantshafsbandalagið (NATO) hefði falast eftir því að fá að byggja langan viðlegukant norðan megin í Finnafirði á Langanesi og að á „bak við tjöldin“ væri utanríkisráðuneytið í samskiptum við sveitarstjórnar Langanesbyggðar um þetta efni.
Þessu hafnar utanríkisráðuneytið alfarið í yfirlýsingu sem birtist á vef stjórnarráðsins í dag.
„Engin áform eða hugmyndir eru uppi um uppbyggingu varnarmannvirkja á því svæði sem þar er til umfjöllunar. Enn síður á sér stað undirbúningsvinna eins og haldið er fram í fréttinni. Engin áform eru um uppbyggingu varnarmannvirkja í Finnafirði og engar beiðnir, hvorki formlegar né óformlegar, hafa verið lagðar fram af hálfu utanríkisráðuneytisins og staðhæfingar um beiðni Atlantshafsbandalagsins eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Fréttin er því röng,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Segja að einfalt hefði verið að svara fyrirspurnum
Í frétt Fréttablaðsins sagði að engin svör hafi fengist við fyrirspurnum um málið hjá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneytið segir að það telji í ljósi þessa rétt að taka fram að blaðamaður hafði samband við fjölmiðlafulltrúa ráðuneytisins, sem staddur var í sumarfríi erlendis og að sá hafi vísað blaðamanninum á staðgengil.
„Blaðamaður hafði ekki samband við staðgengil eða neinn hjá ráðuneytinu til þess að leita staðfestingar á þeim röngu upplýsingum sem hann byggði skrif sín á. Er þetta miður þar sem einfalt hefði verið að koma á framfæri upplýsingum og svara fyrirspurnum um málið,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins.
Í henni segir ennfremur að á grundvelli varnaráætlana leggji NATO „mat á þörf fyrir uppbyggingu varnarmannvirkja í bandalagsríkjum“ og að það sé ákvörðun stjórnvalda í hverju ríki „hvort og hvaða varnarmannvirki eru byggð“.
Þetta segir ráðuneytið einnig gilda um Ísland, „þar sem íslensk stjórnvöld hafa lokaorð um alla varnartengda uppbyggingu. Auk þess bætir ráðuneytið því við að samráð um uppbyggingu varnarmannvirkja eig sér „ávallt stað á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og slíkar ákvarðanir taka að sjálfsögðu mið af ástandi heimsmála hverju sinni“.