Útflutningur á skyri minnkar þrátt fyrir aukinn kvóta

Skyrútflutningur til ESB-landa í fyrra var einungis þriðjungur af því sem hann var árið 2018, þrátt fyrir að útflutningskvótinn hafi margfaldast.

neysluvorur_15349148838_o.jpg
Auglýsing

Alls voru flutt út 516 tonn af skyri til landa innan Evr­ópu­sam­bands­ins í fyrra, sam­kvæmt tölum frá Hag­stofu Íslands. Þetta er mun minna en á árunum 2019 og 2018 og langt frá því að fylla útflutn­ings­kvót­ann, sem hefur tífald­ast á síð­ustu árum.

Betra skila­verð með skyr­út­flutn­ingi

Sam­kvæmt Mjólk­ur­sam­söl­unni hefur verið unnið mark­visst að því að auka útflutn­ing og sölu á skyri til nágranna­landa Íslands á síð­ustu árum, þar sem mjólk­ur­fram­leið­endur fái betra skila­verð á mjólk­inni þannig heldur en með öðrum útflutn­ings­leið­um.

Á þetta minnt­ist einnig Einar Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Auð­humlu og MS, árið 2010, en sam­kvæmt honum er fram­legð af útflutn­ingi skyrs mun betri en í útflutn­ingi und­an­rennu­dufts og svipuð fram­legð­inni af skyri á inn­an­lands­mark­aði.

Auglýsing

Meira flutt út og stærri kvóti

Á næstu árum marg­fald­að­ist útflutn­ingur á skyri til ESB-landa, úr 20 tonnum árið 2010 í 1.422 tonn árið 2018. Sam­hliða þess­ari aukn­ingu beittu íslensk hags­muna­sam­tök sér fyrir því að toll­frjáls kvóti til Evr­ópu, sem var þá í 380 tonn­um, yrði rýmk­að­ur.

Sam­kvæmt skýrslu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um milli­ríkja­við­skipti á búvörum leiddi þessi þrýst­ingur til þess að Ísland hóf samn­inga­við­ræður við ESB um aukið frelsi í við­skiptum með land­bún­að­ar­vör­ur, árið 2012. Við­ræð­unum lauk svo með samn­ingi sem var und­ir­rit­aður árið 2015 og fól í sér stór­auk­inn útflutn­ings­kvóta á skyri.

Ákveðið var að auka kvót­ann úr 380 tonnum í tæp þús­und tonn árið 2018, rúm 2.000 tonn árið 2019 og svo rúm 3.000 tonn í fyrra. Í ár nemur toll­frjáls útflutn­ings­kvóti á skyri til ESB fjögur þús­und tonn­um.

Hröð minnkun eftir 2018

Þrátt fyrir stærri kvóta á þessum árum hefur útflutn­ingur á skyri til Evr­ópu­sam­bands­ins hins vegar ekki auk­ist. Þvert á móti hefur hann minnkað hratt sam­kvæmt tölum Hag­stofu um vöru­út­flutn­ing eftir toll­skrár­núm­er­um. Þannig dróst magn skyr­út­flutn­ings til ESB-landa saman um rúman þriðj­ung árið 2019 og nam þá 922 tonn­um. Í fyrra dróst svo magnið aftur saman um tæpan helm­ing og nam þá 516 tonn­um. Þró­un­ina má sjá á mynd hér að neð­an.

Mynd: Kjarninn. Útflutningstölur frá 2010-2018 eru fengnar frá utanríkisráðuneytinu, en tölur frá 2019 og 2020 frá Hagstofu.

Nýt­ing íslenskra skyr­út­flytj­enda á toll­kvót­um, sem var vel yfir 100 pró­sent á árunum 2012-2015 og árin 2017-2018, hefur því minnkað til muna. Árið 2019 nam nýt­ingin 42 pró­sentum sam­kvæmt Hag­stofu, og lækk­aði hún svo niður í 17 pró­sent í fyrra.

Þessar tölur gætu hins vegar ofmetið útflutn­ing til Evr­ópu­sam­bands­ins, þar sem þær telja með útflutn­ing á skyri til Sviss. Sam­kvæmt tölum frá Evr­ópu­sam­band­inu fluttu Íslend­ingar aðeins út 100 tonn af skyri til ESB-landa árið 2019 og nýttu því ein­ungis 4,5 pró­sent af útflutn­ings­kvót­anum þá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent