Útgáfufélagið Fótspor ehf. er hætt útgáfu, en félagið hefur meðal annars staðið að útgáfu fjölda bæjar- og landshlutablaða. Þeirra á meðal er Reykjavík vikublað í ritstjórn Ingimars Karls Helgasonar og Akureyri vikublað í ritstjórn blaðamannsins Björns Þorlákssonar, sem jafnframt hefur verið sagt upp störfum hjá útgáfufélaginu.
Björn greindi frá endalokum Fótspors á Facebook síðu sinni nú undir kvöld, en honum bárust tíðindin með tölvupósti í dag.
Skjótt skipast veður í lofti sem er ekkert nýtt í fjölmiðlaheiminum. Eftir fjögurra ára farsælt útgáfusamstarf með Á...Posted by Björn Þorláksson on 25. júlí 2015
Auglýsing