Útgönguspá í Svíþjóð sýnir þingmeirihluta til vinstri

Útlit er fyrir að hægt verði að mynda nýja ríkisstjórn vinstra megin við miðju í Svíþjóð, undir forsæti Sósíaldemókrata, samkvæmt útgönguspá SVT sem birt var um leið og kjörstaðir lokuðu kl. 18 að íslenskum tíma.

Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar.
Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar.
Auglýsing

Kjör­stöðum hefur verið lokað í Sví­þjóð, en þar fara fara fram þing­kosn­ingar í dag. Útgöngu­spá sænska rík­is­sjón­varps­ins SVT var birt um leið og kjör­stöðum var lokað og sýnir hún að flokk­arnir fjórir sem til­heyra vinstri­blokk­inni eru með þing­meiri­hluta, sem er rýmri en síð­asta skoð­ana­könnun á vegum SVT sýndi, eða 176 þing­sæti gegn 173.

Sós­í­alde­mókratar eru stærstir sam­kvæmt útgöngu­spánni, með 29,3 pró­sent atkvæða og Sví­þjóð­ar­demókratar eru með 20,5 pró­sent, sam­kvæmt spánni. Eng­inn af minni flokk­unum á þingi virð­ist eiga í mik­illi hættu á að falla undir fjög­urra pró­senta þrösk­uld­inn svo­kall­aða, ef það mun ger­ast myndi það gjör­breyta stöð­unni. Frjáls­lyndi flokk­ur­inn (Li­bera­l­arna) er sá flokkur sem er næst því að falla undir þrösk­uld­inn, en flokk­ur­inn mælist með 4,7 pró­senta fylgi sam­kvæmt útgöngu­spánni.

Afar mjótt er á mun­um, en sam­an­lagt fylgi rauð­grænu blokk­ar­innar er 49,8 pró­sent gegn 49,2 pró­sent fylgi flokk­anna hægra megin við miðju.

Auglýsing

Útgöngu­spá SVT árið þing­kosn­ing­arnar 2018 var ekk­ert sér­lega langt frá því að spá fyrir um úrslit kosn­ing­anna hjá flestum flokk­um, þó með þeim und­an­tekn­ingum að Sví­þjóð­ar­demókratar mæld­ust um hátt í tveimur pró­sentu­stigum undir raun­veru­legu kjör­fylgi í útgöngu­spánni og Sós­í­alde­mókratar og Hægri­flokk­ur­inn (Moder­at­arna) voru mældir stærri í útgöngu­spánni en raunin varð, þegar atkvæði höfðu verið tal­in.

Allt verið innan skekkju­marka sam­kvæmt könn­unum

Und­an­farnar vikur hefur verið útlit fyrir að kosn­ingar dags­ins yrðu afar spenn­andi. Síð­ustu skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda kosn­ing­anna sýndu að svo virt­ist sem meiri­hluti vinstri blokk­ar­innar á þingi gæti hald­ið, en að það yrði þá lík­lega með miklum naum­ind­um. Sú er staðan sam­kvæmt útgöngu­spánn­i.

Sam­kvæmt síð­ustu skoð­ana­könnun rann­sókna­fyr­ir­tæk­is­ins Novus fyrir SVT, sem birt var á föstu­dag, mæld­ist rauð­græna blokkin vinstra­megin við miðju, Sós­í­alde­mókrat­ar, Vinstri­flokk­ur­inn, Græn­ingjar og Mið­flokk­ur­inn, með 49,7 pró­sent fylgi. Borg­ara­legu öflin á hægri vængn­um, auk Sví­þjóð­ar­demókrata, mæld­ust á sama tíma með 49,4 pró­sent fylgi sam­an­lagt.

Þau úrslit hefðu sam­kvæmt útreikn­ingum SVT skilað vinstri­blokk­inni 175 þing­sætum gegn 174 þing­sætum borg­ara­legu afl­anna og Sví­þjóð­ar­demókrata, sem eygja eftir þessar kosn­ingar í fyrsta sinn mögu­leika til áhrifa eftir að hafa áður verið úti í kuld­anum í sænskum stjórn­mál­um, en á und­an­förnum miss­erum hafa flokkar á hægri væng sænskra stjórn­mála opnað á sam­starf við flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent