Verðbólgan komin í 9,9 prósent – Ekki mælst hærri í 13 ár

Fatnaður og skór auk húsgagna og húsbúnaðar lækkaði í verði á milli mánaða en verð á flugfargjöldum hækkaði umtalsvert. Verðbólgan hefur ekki mælst jafn mikil síðan í september árið 2009.

peningar
Auglýsing

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði í júlí um 1,17 pró­sent frá fyrri mán­uði og hefur vísi­talan því hækkað um 9,9 pró­sent á síð­ustu 12 mán­uð­um. Árs­verð­bólga hefur ekki mælst eins mikil síðan í sept­em­ber árið 2009 fyrir hart­nær 13 árum. Hag­stofan birti upp­færða vísi­tölu neyslu­verðs í dag en hún stendur í 553,5 stig­um.

Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis hækk­aði um 0,94 pró­sent í júlí og stendur hún í 459,4 stig­um. Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis hefur hækkað um 7,5 pró­sent síð­asta árið.

Fram kemur á vef Hag­stof­unnar að sum­ar­út­sölur hafi haft áhrif til lækk­unar á vísi­töl­una en verð á fötum og skóm lækk­aði um 6,8 pró­sent og verð á hús­gögnum og heim­il­is­bún­aði lækk­aði sömu­leiðis um 2,6 pró­sent.

Auglýsing

Hátt í 40 pró­sent hækkun á flug­far­gjöldum

Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hækk­aði aftur á móti um 2,4 pró­sent og verð á flug­far­gjöldum hækk­aði um 38,3 pró­sent. Þessi mikla hækkun á verði flug­far­gjalda í júlí er til­komin vegna van­mats á hækk­un­inni í fyrri mán­uði.

„Hækkun á flug­far­gjöldum til útlanda er til­komin vegna verð­hækk­unar í júlí 19,9% (0,43%), en einnig vegna þess að flug­far­gjöld voru van­metin í júní 2022 (0,29%). Hækkun flug­far­gjalda í júní hefði átt að vera 20,4% ef ekki hefði komið til van­mats. Leið­rétt­ingin hefur ekki áhrif á birt gildi vísi­tölu neyslu­verðs í jún­í,“ segir á vef Hag­stof­unn­ar.

Spá fimm til sex pró­senta stýri­vöxtum í lok árs

Til að reyna að stemma stigu við verð­bólgu hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti sína skarpt að und­an­förnu. Þeir standa nú í 4,75 pró­sentum og voru hækk­aðir um heilt pró­sentu­stig fyrir mán­uði síð­an. Vextir Seðla­bank­ans náði lág­marki sínu í nóv­em­ber árið 2020 þegar þeir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Í maí í fyrra hófst svo vaxta­hækk­un­ar­ferli þegar vextir voru hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig, upp í eitt pró­sent. Síðan þá hafa þeir hækkað upp í áður­nefnd 4,75 pró­sent.

Í hag­spá Lands­bank­ans frá því í maí er því spáð að stýri­vextir muni halda áfram að hækka og verða sex pró­sent við lok árs. Íslands­banki spáir því að vext­irnir verði á bil­inu fimm til sex pró­sent við lok árs í sinni hag­spá sem er einnig frá því í maí.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent