Druslugangan ekki sofnuð á verðinum

Skipuleggendur Druslugöngunnar segja margvísleg bakslög í mannréttindabaráttu hafa sýnt að ekki megi sofna á verðinum þegar öryggi og sjálfræði kvenna og jaðarsettra hópa séu í húfi. Gengið verður til stuðnings þolendum á morgun eftir tveggja ára hlé.

„Ef að við höldum áfram að meðhöndla kynferðisbrot sem einangruð tilvik fáum við aldrei heildarmyndina sem þarf til að skilja og afnema nauðgunarmenningu.“
„Ef að við höldum áfram að meðhöndla kynferðisbrot sem einangruð tilvik fáum við aldrei heildarmyndina sem þarf til að skilja og afnema nauðgunarmenningu.“
Auglýsing

Druslu­gangan fer fram á morg­un, laug­ar­dag­inn 23. júlí, þar sem gengið verður frá Skóla­vörðu­holti niður á Aust­ur­völl til stuðn­ings þolendum kyn­ferð­is­of­beld­is, eftir tveggja ára hlé vegna heims­far­ald­urs. Sér­stök áhersla verður lögð á valda­misvægi og reynslu­heim jað­ar­settra hópa innan sam­fé­lags­ins í göng­unni í ár.

Gangan var haldin í fyrsta sinn á Íslandi 23. júlí árið 2011. Í sam­tali við Kjarn­ann segja skipu­leggendur að Druslu­gangan sé ein af þeim sam­tökum sem hafa það að mark­miði að þörfin fyrir þau hætti að vera til staðar og að marg­vís­leg bakslög í mann­rétt­inda­bar­átt­unni hafi sýnt að ekki megi sofna á verð­inum þegar sjálf­ræði kvenna og ann­arra jað­ar­settra hópa séu í húfi.

Auglýsing
Skipuleggendur segja mikið vatn hafia runnið til sjávar síðan síð­asta ganga var hald­in, og telja við­horf sam­fé­lags­ins vissu­lega hafa þró­ast í þá átt að almenn­ingur geri sér betur grein fyrir því hvaða hlut­verk valda­misvægi spilar í kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Ekki hægt að upp­ræta kyn­ferð­is­of­beldi án þess að horfast í augu við þau valda­kerfi sem gera ofbeld­inu kleift að við­gang­ast í þögn

„Fólk skilur í auknum mæli að sam­þykki lítur ekki alltaf eins út, heldur tekur mið af aðstæð­um. Þættir eins og ald­ur, staða, vímu­efna­vandi, þroska­haml­an­ir, kyn­þátta­for­dóm­ar, bágur fjár­hag­ur, fjöl­skyldu­tengsl og svo fram­veg­is, hafa áhrif á mögu­leika fólks til að veita upp­lýst og ein­lægt sam­þykki til kyn­ferð­is­legra athafna. Þessi þróun í við­horfum virð­ist að sama skapi vera að ryðja sér til rúms við reglu­setn­ingu og ákvarð­ana­töku vald­hafa, eins og dóm­ara. Tekin hafa verið stór skref í rétta átt, til dæmis með því að sífellt fleiri mann­rétt­inda­sam­tök skipa kyn­ferð­is­of­beldi í flokk stríðs­glæpa og/eða ólög­mætrar vopn­beit­ing­ar, auk þess sem skil­grein­ing íslenskrar lög­gjafar tekur vax­andi til­lit til þessa veru­leika.“

Þess vegna vilji skipu­leggendur leggja áherslu á þessi sjón­ar­mið í göng­unni í ár. Gang­ast verði við því kyn­ferð­is­of­beldi eigi sér sjaldn­ast stað í tóma­rúmi og ekki sé hægt að upp­ræta kyn­ferð­is­of­beldi án þess að horfast í augu við þau valda­kerfi sem gera ofbeld­inu kleift að við­gang­ast í þögn. „Ef að við höldum áfram að með­höndla kyn­ferð­is­brot sem ein­angruð til­vik fáum við aldrei heild­ar­mynd­ina sem þarf til að skilja og afnema nauðg­un­ar­menn­ing­u.“

Gengið verður frá Hall­gríms­kirkju kl. 14 á morgun og haldið niður á Aust­ur­völl þar sem hlýtt verður á ræður frá jað­ar­settum kon­um. „Við biðjum gesti göng­unnar og stuðn­ings­fólk þolenda að hlusta á upp­lif­anir jað­ar­settra kvenna, sem ætla að halda ræður á laug­ar­dag­inn, og læra hvernig við getum gert betur í þeirra mála­flokki svo kyn­ferð­is­of­beldi fái ekki þrif­ist. Vonin er að þessar áherslur end­ur­speglist svo í starfi þeirra sem eiga aðkomu að stefnu­mótun á sviði kyn­ferð­is­of­beld­is.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent