Þolendur Jeffrey Epstein höfða mál gegn Deutsche Bank og JPMorgan

Viðskiptabankar Jeffrey Epstein hunsuðu „rauð flögg“ og gerðu honum kleift að stunda mansal og brjóta á fjölda kvenna. Þetta er rökstuðningur kvenna sem ætla í mál við tvo banka vestanhafs.

Jeffrey Epstein.
Jeffrey Epstein.
Auglýsing

Tvær konur sem saka banda­ríska auð­jöf­ur­inn Jef­frey Epstein um kyn­ferð­is­brot hafa höfðað mál gegn tveimur banka­stofn­unum JP Morgan Chase og Deutsche Bank. Þær saka bank­ana um að hafa hunsað „rauð flögg“ um við­skipta­hætti og meint brot Epsteins og hagn­ast á man­sali sem hann stund­aði. Epstein var hand­tek­inn vegna fjölda ásak­ana um kyn­ferð­is­brot gegn ungum stúlkum árið 2019. Hann svipti sig lífi í fang­els­inu skömmu síðar og áður en saka­mál­in, sem m.a. snéru að man­sali voru tekin fyrir dóm­stóla.

Auglýsing

Kærur kvenn­anna eru skil­greindar sem hóp­mál­sókn­ir. Kon­urnar tvær eru ekki nafn­greindar í fréttum Wall Street Journal sem sagði fyrst frá mál­inu og hefur máls­skjölin undir hönd­um.

Önnur konan er í þeim sögð hafa verið ball­ett­dans­ari sem lenti í neti Epsteins og sam­verka­manna hans árið 2006. Brotin sem hún sakar auð­mann­inn um stóðu allt til árs­ins 2013.

Í kærunni er því haldið fram að starfs­menn JP Morgan hafi vitað að Epstein og félög honum tengd hafi notað reikn­inga hjá bank­anum í tengslum við man­sal. Í gegnum þessa reikn­inga hafi flætt háar fjár­hæð­ir. Þá hafi glæp­sam­leg saga Epsteins átt að vera á vit­orði stjórn­enda bank­ans.

Hin konan höfðar mál gegn Deutsche Bank. Sam­kvæmt dóms­skjölum mis­not­aði Epstein hana kyn­ferð­is­lega og seldi man­sali í fimmtán ár. Hún segir hann hafa borgað sér fyrir kyn­lífs­at­hafnir með bein­hörðum pen­ing­um.

Í kærunni kemur fram að Epstein hafi snúið sér til Deutsche Bank með við­skipti sín er tengsl hans við JP Morgan rofn­uðu árið 2013. Einnig er vísað til nið­ur­stöðu eft­ir­lits­stofn­unar í New York sem var sú að þrátt fyrir að stjórn­endur Deutsche Bank hafi skil­greint Epstein sem „áhættu“ fyrir bank­ann hafi þeir ekki grand­skoðað við­skipti hans í tengslum við meinta glæp­sam­lega starf­semi sem hefði átt að vera þeim ljós.

Ríkissaksóknari New York höfðaði mál gegn Epstein árið 2019 vegna meints mansals og annarra kynferðisbrota. Mynd: EPA

Deutsche Bank hefur við­ur­kennt að hafa gert „grund­vallar mis­tök“ er Epstein flutti við­skipti sín til bank­ans. Hins vegar hafnar bank­inn umkvört­un­ar­efnum kvenn­anna og seg­ist ætla að taka til varna fyrir dóm­stól­um.

„Ep­stein og sam­verka­menn hans hefðu ekki getað fram­kvæmd brot sín án aðstoðar frá efn­uðum ein­stak­lingum og fjár­mála­stofn­un­um,“ segir Bradley Edwards, lög­fræð­ingur í teymi kvenn­anna, við BBC. „Við munum ekki hætta að berj­ast fyrir þolend­unum fyrr en allir sem komu að málum hafa verið dregnir til ábyrgð­ar. Þetta er stórt skref í þá átt en markar engin enda­lok.“

Hann segir tíma­bært að þeir sem gerðu Epstein kleift að mis­nota stúlkur axli ábyrgð, hvort sem það eru auð­ugir ein­stak­lingar eða bank­arn­ir. „Þessir aðilar spil­uðu stórt hlut­verk.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent