Hve mikill auður er nóg? Ekki svo mikill

Niðurstöður nýrrar rannsóknar á því hversu mikla peninga fólk telur að það þurfi til þess að lifa þægilegu lífi benda til þess að flestir séu nokkuð hógværir í þeim efnum. Nema auðvitað Bandaríkjamenn.

Niðurstöðurnar gætu gefið vonir um sjálfbærari efnahagslegar framfarir.
Niðurstöðurnar gætu gefið vonir um sjálfbærari efnahagslegar framfarir.
Auglýsing

Tíu millj­ónir banda­ríkja­dala er sú upp­hæð sem flestir telja nóg til þess að þeir geti lifað þægi­legu lífi, að Banda­ríkja­mönnum und­an­skild­um.

Þetta eru niðru­stöður nýlegrar rann­sóknar sem fram­kvæmd var af sál­fræð­ingum í tveimur háskólum í Bath í Bret­landi. Rann­sóknin náði til 8 þús­und þátt­tak­enda í 33 löndum í sex heims­álf­um. Í 86% þeirra landa sem rann­sóknin náði til voru millj­ón­irnar 10, taldar í banda­ríkja­döl­um, sú upp­hæð sem fólk yrði sátt með, en spurn­ingar rann­sókn­ar­innar sneru raunar sér­stak­lega að þeirri upp­hæð sem fólk teldi nógu háa fyrir lottó­vinn­ing.

Auglýsing

Sam­kvæmt umfjöllun For­bes um málið gætu nið­ur­stöð­urnar bent til þess að fólk sé í raun almennt ekki jafn gráð­ugt og áður hefur verið talið. Nið­ur­stöður frá banda­rískum þátt­tak­endum rann­sókn­ar­innar voru þó aðr­ar, þar sem meiri­hluti taldi að tíu sinnum hærri upp­hæð, eða 100 millj­ónir banda­ríkja­dala, væri ásætt­an­leg.

Meiri­hluti fólks frá Argent­ínu, Ind­landi og Rúss­landi sagð­ist hins vegar myndu vel geta sætt sig við eina milljón banda­ríkja­dala, eða minna, til þess að lifa þægi­legu lífi.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar verður munur á þeirri upp­hæð sem fólk telur ásætt­an­lega ekki rak­inn til mis­mun­andi efna­hags­legrar þró­unar á milli þeirra landa sem rann­sóknin náði til, heldur voru þátt­tak­endur sem voru yngri, búsettir í borgum og kunna að meta völd, frama og sjálf­stæði lík­legri til að telja mun hærri eða ótak­mark­aðar upp­hæðir ásætt­an­leg­ar. Þeir voru einnig lík­legri til að búa í löndum þar sem meiri áhersla er lögð á sam­fé­lags­vit­und og þar sem valda­ó­jafn­vægi er við­tekn­ara.

Gefi vonir um sjálf­bær­ari fram­farir í efna­hags­málum

Nið­ur­stöð­urnar gætu þó gefið vonir um sjálf­bær­ari efna­hags­legar fram­far­ir, en sam­kvæmt höf­undum rann­sókn­ar­innar hafa hug­myndir um að fólk hafi ótak­mark­aðar lang­anir verið við­teknar síðan á tímum forn­grikkja og að í þær sé enn haldið fast í kennslu­bókum hag­fræð­inn­ar.

Rann­sóknin kunni að hafa sýnt fram á að þessi kenn­ing sé röng, í hið minnsta í flestum löndum heims­ins, og að sjálf­bær mark­mið um tak­mörkun auðs og vaxtar gætu verið í meira sam­ræmi við per­sónu­legar hug­sjónir fólks en hingað til hefur verið talið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent