Tesla snýr baki við Bitcoin

Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur selt megnið af eignarhlut sínum í rafmyntinni Bitcoin. Fyrirtækið keypti talsvert af Bitcoin í fyrra og Elon Musk hét því að fyrirtækið myndi ekki selja. Enn eitt svikið loforð Musks segir sérfræðingur í tæknimálum.

Elon Musk er ríkasti maður heims. Hér heldur hann tölu við opnun nýrrar verksmiðju rafbílaframleiðandans Tesla í Gruenheide í útjaðri Berlínar í mars síðastliðnum.
Elon Musk er ríkasti maður heims. Hér heldur hann tölu við opnun nýrrar verksmiðju rafbílaframleiðandans Tesla í Gruenheide í útjaðri Berlínar í mars síðastliðnum.
Auglýsing

Raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla hefur losað sig 75 pró­sent af eignum sínum í raf­mynt­inni Bitcoin. Virði raf­mynt­ar­innar hefur hríð­fallið á síð­ustu miss­erum og er virði eins Bitcoin nú rúm­lega 22 þús­und Banda­ríkja­dal­ir, rúmar þrjár millj­ónir króna. Þegar virði raf­mynt­ar­innar stóð sem hæst í nóv­em­ber á síð­asta ári var verðið tæp­lega 69 þús­und dal­ir, sem sam­svarar tæp­lega níu og hálfri milljón króna.

Fram kemur í umfjöllun BBC að fyr­ir­tækið hafi selt Bitcoin fyrir um 936 millj­ónir Banda­ríkja­dala, það er um 129 millj­arðar króna. Við lok síð­asta árs var and­virði raf­mynt­ar­innar sem fyr­ir­tækið hefur nú selt mun hærra eða um tveir millj­arðar Banda­ríkja­dala, um 275 millj­arðar króna.

Stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins og for­stjóri þess, Elon Musk, hefur verið ötull tals­maður raf­mynta á borð við Bitcoin. Þannig hafa tíst hans um kaup á hinum ýmsu raf­myntum haft mikil áhrif á bæði verð þeirra og umfang við­skipta með raf­mynt­irn­ar.

Auglýsing

Hét því að selja ekki

Í febr­úar á síð­asta ári greindi fyr­ir­tækið frá því að það hefði keypt Bitcoin fyrir einn og hálfan millj­arð dala, rúm­lega 200 millj­arða króna. Í kjöl­far kaupanna jókst eft­ir­spurn eftir raf­mynt­inni til muna.

Í maí í fyrra greindi fyr­ir­tækið aftur á móti frá því að kaup­endum raf­bíla fyr­ir­tæk­is­ins stæði ekki lengur til boða að greiða fyrir bíl­ana með Bitcoin. Í yfir­lýs­ingu sem Musk sendi frá sér á Twitter í kjöl­farið sagði hann það gert vegna áhyggja af notkun jarð­efna­elds­neytis við vinnslu raf­mynt­ar­innar en svo­kall­aður námu­gröftur (e. mining) eftir Bitcoin fer fram með orku­frekum tölv­um. Í yfir­lýs­ing­unni sem sjá má hér að neðan sagði Musk einnig að fyr­ir­tækið ætl­aði ekki að selja eign­ar­hlut sinn sem bund­inn var í Bitcoin og að það hygð­ist bjóða upp á notkun raf­mynt­ar­innar í við­skiptum um leið og sjálf­bær­ari leiðir til Bitcoin vinnslu stæðu þeim sem grafa eftir mynt­inni til boða.

Taka þurfi orðum Musks með ákveðnum fyr­ir­vara

Sér­fræð­ingur BBC í banda­ríska tækni­geir­an­um, James Clayton, ritar að þetta sé enn eitt lof­orðið sem Musk stendur ekki við og áminn­ing um að taka þurfi orðum auð­kýf­ings­ins með ákveðnum fyr­ir­vara. Orð hans, sem svo sann­ar­lega geti haft mikil áhrif á mark­aði, séu alls ekki meit­luð í stein, ritar Clayton.

Tölu­vert hefur verið fjallað um fyr­ir­huguð kaup Musk á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter sem hann reynir nú að losna und­an. Twitter hefur stefnt Musk fyrir að standa ekki við bind­andi kauptil­boð sem Musk gerði í apríl á þessu ári. Til­boðið hljóð­aði upp á 44 millj­arða dala, um 6000 millj­arða króna. Að mati lög­fræð­inga Musk hefur hann fullan rétt til þess að ganga frá kaup­unum vegna ófull­nægj­andi upp­lýs­inga­gjafar frá Twitter um fjölda gervi­menna (e. bots) á sam­fé­lags­miðl­in­um. Mál Twitter gegn Musk verður tekið fyrir af banda­rískum dóm­stólum í októ­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent