Verslunarmenn og Starfsgreinasambandið ætla saman í kjaraviðræðurnar

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands ætla að „taka höndum saman“ í viðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning. Hátt í 90 þúsund manns á almennum vinnumarkaði eru innan landssambandanna tveggja.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður LÍV og Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Ragnar Þór Ingólfsson er formaður LÍV og Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Auglýsing

Lands­sam­band íslenzkra verzl­un­ar­manna (LÍV) og Starfs­greina­sam­bands Íslands (SGS) hafa ákveðið að taka höndum saman í við­ræðum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins um nýjan kjara­samn­ing á almennum vinnu­mark­aði.

Í sam­hljóða til­kynn­ingum lands­sam­tak­anna tveggja segir að ljóst sé að sam­starf LÍV og SGS muni „skila auknum slag­krafti í kjara­samn­ings­við­ræð­urn­ar“ en lands­sam­tökin eru leidd af þeim Ragn­ari Þór Ing­ólfs­syni for­manni VR og Vil­hjálmi Birg­is­syni for­manni Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness.

Auglýsing

Um er að ræða þau tvö stærstu af alls fimm lands­sam­tökum launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði og nær sam­starfið til hátt í 90 þús­und ein­stak­linga sem starfa á almennum vinnu­mark­aði innan alls tutt­ugu stétt­ar­fé­laga.

„Mjög ríkur vilji er innan beggja sam­banda að gera sam­eig­in­lega atlögu að nýjum kjara­samn­ingi þar sem áherslan verður á að auka kaup­mátt og tryggja stöð­ug­leika í efna­hags­líf­in­u,“ segir í til­kynn­ing­unni frá LÍV og SGS.

Ragnar Þór kall­aði þetta „of­ur­banda­lag“ árið 2018

Hug­myndir voru uppi um sam­flot LÍV og SGS fyrir kjara­við­ræðn­a­lot­una sem end­aði með gerð lífs­kjara­samn­ings­ins árið 2019. Ragnar Þór viðr­aði hug­mynd­ina þá í færslu á Face­book og kall­aði slíkt sam­starf „of­ur­banda­lag“.

Af „of­ur­banda­lag­inu“ í þeirri mynd varð hins vegar ekki og æxl­uð­ust málin meira að segja að lokum svo að VR, sem er langstærsta stétt­ar­fé­lagið innan LÍV, var ekki í sam­floti með hinum tíu félög­unum innan LÍV í við­ræðum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins.

Hins vegar má segja að ákveð­inn vísir að því sam­starfi sem nú hefur raun­gerst hafi orðið að veru­leika þá þeg­ar, enda fóru VR, Efl­ing og Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness í sam­flot í kjara­við­ræðum sínum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent