VG langt undir kjörfylgi og fengi sjö þingmenn

Ríkisstjórnin nýtur 55 prósent stuðnings en flokkarnir sem hana mynda fengju þó ekki meirihluta ef gengið yrði til kosninga nú. Framsókn bætir við sig, Sjálfstæðisflokkur stendur í stað en VG myndi tapa fjórum þingmönnum miðað við kosningarnar 2017.

Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja á blaðamannafundi í Hörpu í fyrra þegar efnahagsaðgerðir vegna heimsfaraldurs voru kynntar.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja á blaðamannafundi í Hörpu í fyrra þegar efnahagsaðgerðir vegna heimsfaraldurs voru kynntar.
Auglýsing

Þrátt fyrir að rík­is­stjórnin njóti stuðn­ings meiri­hluta lands­manna, sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR, fengju flokk­arnir þrír sem hana mynda í dag hvorki þann meiri­hluta, hvorki þegar horft er til sam­an­lagðs fylgis né dreif­ingar þing­sæta . Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­inn­ar, sem birt er í Morg­un­blað­inu í dag, fengi Sjálf­stæð­is­flokkur 16 þing­sæti, Vinstri græn 7 og Fram­sókn­ar­flokkur 8. Sam­an­lagt fylgi þeirra yrði, ef kosið yrði til Alþingis nú, 48 pró­sent.

Sam­kvæmt könn­un­inni myndu Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur halda sama fjölda þing­sæta og í síð­ustu kosn­ingum en Vinstri græn hins vegar tapa fjór­um. Sjálf­stæð­is­flokkur er með 24,6 pró­sent fylgi, sem er nán­ast það sama og í þing­kosn­ing­unum 2017 og Fram­sókn 12,9 pró­sent fylgi sem er 2,2 pró­sentu­stigum hærra en í síð­ustu kosn­ing­um. Vinstri græn eru hins vegar með 10,5 pró­sent fylgi í könnun MMR en það var 16,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2017.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins segir að sam­kvæmt könn­un­inni, seg­ist 55 pró­sent þátt­tak­enda engu að síður styðja rík­is­stjórn­ina.

Auglýsing

Níu flokkar ná inn á þing. Sam­fylk­ingin myndi bæta við sig tveimur þing­sætum frá síð­ustu kosn­ing­um, fá níu nú (13,1 pró­sent fylg­i). Við­reisn myndi einnig bæta við sig og ná sex mönnum inn á þing og sömu sögu er að segja um Pírata sem eru nú með 12,2 pró­sent fylgi og fengju átta þing­sæti, tveimur fleiri en í kosn­ing­unum 2017. Flokkur fólks­ins er nú með 5,1 pró­sent fylgi og fengi þrjá þing­menn. Mið­flokk­ur­inn fengi svipað fylgi og sama fjölda þing­sæta en myndi tapa sex frá síð­ustu kosn­ing­um.

Sós­í­alistar eru með 5,6 pró­sent fylgi og fengju þrjú þing­sæti.

Könnun MMR var gerð 8.-14. júlí og var hluti af spurn­inga­vagni fyr­ir­tæk­is­ins. Í úrtak­inu voru ein­stak­lingar átján ára og eldri valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MME sem valdir eru úr þjóð­skrá. 945 manns svör­uðu könn­un­inni segir í Morg­un­blað­inu.

Könn­unin er sú fyrsta sem gerð er í sam­starfi MMR við Morg­un­blaðið og MMR vegna þing­kosn­ing­anna sem fram fara í lok sept­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent