„Við tökum glöð að okkur það hlutverk að leiða saman ólík öfl að bestu niðurstöðu“

Forsætisráðherra og formaður VG segist sjá hættur víða um heim þar sem samfélög brotni upp vegna skautunar í stjórnmálaumræðunni. „Ísland má ekki og á ekki að verða þannig.“ Landsfundur Vinstri grænna stendur yfir í dag.

Katrín Jakobsdóttir flutti ávarrp á landsfundi VG í morgun.
Katrín Jakobsdóttir flutti ávarrp á landsfundi VG í morgun.
Auglýsing

Við Vinstri-græn höfum sýnt það að við hefjum verk­efnin og ljúkum þeim, erum með skýr mark­mið og erum til í að taka slag­inn. Verkin sýna merk­in. Og við viljum halda áfram að vinna í þágu fólks­ins í land­in­u.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, á raf­rænum lands­fundi flokks­ins sem hald­inn er í dag.

Í ávarpi sínu fór hún yfir stefnu­á­herslur flokks­ins og hverju þau hefðu áorkað í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. „Við eigum sam­fé­lag þar sem við erum fær um að mæta hvert öðru af virð­ingu og ræða okkur niður að nið­ur­stöð­u.“

Auglýsing

Katrín sagði að það hefði aldrei verið mik­il­væg­ara að standa vörð um það sam­fé­lag. „Við sjáum hætt­urnar víða um heim þar sem sam­fé­lög brotna upp vegna skaut­unar í stjórn­mála­um­ræð­unni. Ísland má ekki og á ekki að verða þannig. Við tökum glöð að okkur það hlut­verk að leiða saman ólík öfl að bestu nið­ur­stöðu. Ekki ein­göngu vegna þess að það er rétt að gera það – heldur vegna þess að við veljum sam­talið fram yfir berg­máls­hell­inn.“

Þá kom fram í máli hennar að Ísland væri land tæki­fær­anna. „En það er ekki sjálf­gefið að við öll fáum notið þeirra. Þess vegna er það okkar hlut­verk að skapa sam­fé­lag þar sem öllum býðst að nýta þessi tæki­færi.

Næsta rík­is­stjórn snýst um þetta; jöfn tæki­færi og jöfn rétt­indi allra. Næsta rík­is­stjórn snýst um að bæta lífs­kjör á Íslandi með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi. Við munum öll sjá hversu miklu inn­viða­upp­bygg­ing und­an­far­inna ára mun skila land­inu fram á við. Næsta rík­is­stjórn snýst um að snúa vörn í sókn í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni. Næsta rík­is­stjórn snýst líka um að stíga stór skref í að auka verð­mæta­sköpun í öllum greinum með auk­inni áherslu á þekk­ing­ar­geir­ann og skap­andi grein­ar.“

Að lokum sagði Katrín að þessa rík­is­stjórn væru þau til­búin að leiða og „tryggja að sú bjarta fram­tíð­ar­sýn sem við stöndum fyrir verði leið­andi við rík­is­stjórn­ar­borðið á næsta kjör­tíma­bilið og þannig tryggja áfram vel­sæld og fram­farir fyrir Ísland – fyrir okkur öll“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent