Viðspyrnan hröð hjá konum en ungir og erlendir sitja eftir

Þrátt fyrir að atvinnuþátttaka sé nú svipuð og hún var í síðustu uppsveiflu hefur samsetning vinnumarkaðarins tekið miklum breytingum á síðustu árum. Á meðan störfum kvenna hefur fjölgað hratt hafa aðrir þjóðfélagshópar ekki náð sér að fullu.

1. maí 2019 - Kröfuganga
Auglýsing

Heild­ar­at­vinnu­þátt­taka er nú á svip­uðum stað og hún var við lok síð­ustu efna­hags­upp­sveiflu árið 2019. Hins vegar hefur staða ungs fólks og inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði versn­að, á meðan atvinnu­þátt­taka kvenna hefur auk­ist. Þetta kemur fram í vinnu­mark­aðs­tölum Hag­stofu og tölum frá Vinnu­mála­stofnun.

Meiri áhrif á kon­ur, inn­flytj­endur og unga

Líkt og Kjarn­inn hefur fjallað um áður hefur heims­far­ald­ur­inn haft ójöfn áhrif á mis­mun­andi þjóð­fé­lags­hópa á vinnu­mark­aði. Þannig fækk­aði starf­andi inn­flytj­endum um 18 pró­sent frá árinu 2019 þegar verst lét, á meðan störfum inn­fæddra fækk­aði ekki um meira en sex pró­sent á sama tíma.

Svipuð áhrif mátti gæta á milli kynja og ald­urs­hópa. Í far­aldr­inum fækk­aði störfum kvenna en störfum karla, auk þess sem fólk undir 25 ára aldri var mun lík­legra til að hætta í vinn­unni sinni eða vera sagt upp heldur en aðrir ald­urs­hóp­ar.

Auglýsing

Á síð­asta ári tók störfum yngsta ald­urs­hóps­ins svo aftur að fjölga, en með því jókst hlut­fall þeirra sem voru starf­andi úr 61 pró­senti og 67 pró­sent­um. Þetta er þó mun lægra hlut­fall en árið 2019, þegar rúm­lega 70 pró­sent fólks á aldr­inum 16-25 ára var starf­andi.

Staða inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði batn­aði einnig tölu­vert í fyrra eftir því sem efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins minnkuðu, en starf­andi inn­flytj­endur í des­em­ber voru orðnir jafn­margir og þeir voru á milli áranna 2019 og 2020. Hins vegar hefur atvinnu­lausum inn­flytj­endum ekki fækk­að, en sam­kvæmt tölum frá Vinnu­mála­stofnun eru rúm­lega fjórir af hverjum tíu á atvinnu­leys­is­skrá inn­flytj­endur og hefur það hlut­fall aldrei verið jafn­hátt.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Aðra sögu er hins vegar að segja um konur á vinnu­mark­aði, en staða þeirra gjör­breytt­ist á síð­asta ári. Líkt og sést á mynd hér að ofan nær helm­ing­að­ist atvinnu­leysi kvenna í fyrra, þar sem það fór úr tæpum átta pró­sentum niður í 4,5 pró­sent. Á síð­ari hluta árs­ins hefur atvinnu­leysi kvenna svo verið minna en atvinnu­leysi karla, sem hefur verið til­tölu­lega óbreytt í rúmum fimm pró­sent­um.

Sömu­leiðis hefur starf­andi konum fjölgað tölu­vert hraðar en starf­andi körl­um. Sam­hliða því hefur atvinnu­þátt­taka kvenna aukist, en hún mælist nú í tæpum 76 pró­sent­um, sem er meira en hún var árið 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent