Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins hefur ákveðið að sækjast ekki eftir að leiða flokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum í vor.
Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni í dag.
Miðflokkurinn fékk 3.615 atkvæði í síðustu kosningum árið 2018 eða 6,1 prósent atkvæða. Flokkurinn fékk þar af leiðandi einn fulltrúa í borgarstjórn. Kosningarnar í vor munu fara fram þann 14. maí.
Sér ekki fyrir sér að nokkuð breytist á næsta kjörtímabili
Vigdís segir að ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun séu margar. Í fyrsta lagi hafi kjörtímabilið verið mjög krefjandi pólitískt séð. „Ég hef flett ofan af fjármálasukki í fjölda málaflokka í borgarrekstrinum án nokkurra afleiðinga fyrir borgarstjóra og meirihlutann,“ skrifar hún.
Í öðru lagi sé fjárhagsstaða Reykjavíkur komin langt yfir hættumörk. „Skuldirnar eru stjarnfræðilegar og áætlað er að þær verði 240 milljarðar í árslok 2026. Þar af er búið að skuldsetja næsta kjörtímabil upp á 92 milljarða samkvæmt lántökuáætlun. Það er sérlega ósvífið.“
Í þriðja lagi hafi viðhald skólahúsnæðis verið ófullnægjandi og segir Vigdís að grunnskólabörn séu á hrakhólum út um alla borg. „Ekki hefur verið staðið við uppbyggingu leikskóla og borginni er haldið í heimatilbúnum lóðaskorti sem leiðir til fasteignaverðs í hæstu hæðum.“
Í fjórða lagi segir hún að ekkert bendi annað til þess en að borgarstjóri ætli sér að halda völdum „með einhverjum útfærslum að nýjum viðreistum meirihluta eins og í kosningunum 2014 og 2018“.
„Ég sé því ekki fyrir mér að nokkuð breytist á næsta kjörtímabili. Ég met það svo að gagnrýni mín á rekstur borgarinnar með tillögum til úrbóta fái ekki hljómgrunn að kosningum loknum,“ skrifar Vigdís í stöðuuppfærslu sinni.
Kæru stuðningsmenn og Reykvíkingar Ég þakka ykkur fyrir að veita mér brautargengi í Alþingiskosningum 2009 og 2013 og...
Posted by Vigdís Hauksdóttir on Wednesday, March 9, 2022