Vígreif Líf vill að Vinstri græn eignist fleiri kjörna fulltrúa í Reykjavík

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta í gærkvöldi að halda flokksval um efstu þrjú sætin á lista fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi vill leiða listann áfram.

Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna
Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna
Auglýsing

Félags­fundur Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs í Reykja­vík ákvað með kosn­ingu á félags­fundi í gær að halda for­val um þrjú efstu sæti á lista hreyf­ing­ar­innar til fram­boðs í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá VG voru tvær til­lögur lagðar fram fyrir fund­inn, önnur um upp­still­ingu en hin um for­val í þrjú efstu sæt­in. Til­lagan um for­val var sam­þykkt með miklum meiri­hluta, eða 93 pró­sentum atkvæða.

Líf Magneu­dóttir er eini borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, en flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 og tap­aði hátt í fjórum pró­sentu­stigum frá sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2014 og hélt óbreyttum fjölda borg­ar­full­trúa þrátt fyrir að verið væri að fjölga borg­ar­full­trúum úr 15 í 23.

Von­ast til þess að VG eign­ist fleiri full­trúa

Líf hefur boðað að hún ætli sér að fara fram að nýju, ef hún njóti stuðn­ings félaga sinna til þess. Hún segir í sam­tali við Kjarn­ann í dag að hún hafi vonir um að leiða Vinstri græn til betri nið­ur­stöðu í kosn­ing­unum í vor – og að flokk­ur­inn vilji fá fleiri full­trúa kjörna í höf­uð­borg­inni.

„Ég er alltaf víg­reif og alltaf bar­átt­uglöð og alltaf stolt af verkum okkar og því sem við stöndum fyrir og ég vona að borg­ar­búar gefi okkur tæki­færi,“ segir Líf, en hún játar því að úrslit síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga hafi verið skellur fyrir Vinstri græn, þrátt fyrir að hún sé lítið fyrir það að dvelja í for­tíð­inni.

Auglýsing

„Að sjálf­sögðu viljum við fá fleiri borg­ar­full­trúa sem tala fyrir okkar mál­efn­um,“ segir Líf og bætir því við að hún telji að það hafi ef til vill aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að borg­ar­búar veiti Vinstri grænum stuðn­ing sinn, séu þeir ánægðir með með stóru lín­urnar í stefnu núver­andi meiri­hluta í Reykja­vík, í sam­göngu- og skipu­lags­mál­um, lofts­lags­mál­um, skóla­málum og fleiri mála­flokk­um.

Vinstri græn hafi nefn­i­­lega náð mörgum málum inn í meiri­hluta­sátt­­mál­ann og séu „burða­r­ás“ í núver­andi meiri­hluta­­sam­­starfi, þó að Líf seg­ist ekki binda sig við að halda því áfram í sömu mynd eftir kosn­­ing­­ar.

Allir meiri­hluta­flokk­arnir með próf­kjör um efstu sæti

Sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar fara fram 14. maí og hafa fimm af átta flokkum sem nú eiga full­trúa í borg­inni boðað að til standi að láta val á for­ystu­fólki í borg­inni í hendur flokks­manna, með ein­hverjum hætti.

Það ætla allir flokk­arnir í meiri­hlut­anum alla­vega að gera. Rétt eins og Vinstri græn verður Sam­­fylk­ingin með flokksval, Píratar verða með próf­kjör og Við­reisn einnig, í fyrsta sinn í sögu flokks­ins.

Frá undirritun meirihlutasáttmálans árið 2018. Mynd: Bára Huld Beck.

Hjá Sjálf­­stæð­is­­flokknum er þess enn beðið að end­an­­leg ákvörðun verði tekin um að halda annað hvort leið­­toga­­próf­­kjör eins og árið 2018 eða opið próf­­kjör þar sem almennir flokks­­fé­lagar fái að hafa sitt að segja um annað og meira en ein­ungis það hver leiðir list­ann, en raunar er Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi sú eina sem er í fram­boði sem stend­ur. Sú ákvörðun er í höndum full­­trú­a­ráðs flokks­ins sem á enn eftir að koma saman og ákveða fyr­ir­komu­lag­ið.

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn, sem ekki á full­­trúa í borg­­ar­­stjórn í dag, ætlar sér hins vegar að stilla upp lista í borg­inni. Lítið hefur heyrst úr ranni ann­­arra flokka sem eiga full­­trúa í borg­­ar­­stjórn, Mið­­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Sós­í­a­lista­­flokks­ins.

Odd­vitar og einu borg­­ar­­full­­trúar þess­­ara þriggja flokka hafa þó allar lýst því yfir nýlega að þær hafi hug á að sækj­­ast á ný eftir sæti á fram­­boðs­listum flokk­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent