Vilja að nafnlausi tindurinn heiti Helgatindur

Nafnlaus tindur sem stendur um 60 metra upp úr ísbreiðu Vatnajökuls ætti að heita Helgatindur til heiðurs Helga Björnssyni jöklafræðingi, segir í tillögu sem sveitarstjórn Skafárhrepps hefur samþykkt fyrir sitt leyti.

Nafnlausi tindurinn til hægri á myndinni. Efst eru Geirvörtur.
Nafnlausi tindurinn til hægri á myndinni. Efst eru Geirvörtur.
Auglýsing

Til­laga var nýverið lögð fyrir sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps um örnefni áður nafn­lausan fjallstind í Vatna­jökli. Lagt er til að tind­ur­inn fái nafnið Helga­tind­ur, til heið­urs Helga Björns­syni jökla­fræð­ingi.

Að til­lög­unni standa Gunnar Guð­munds­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, Snæv­arr Guð­munds­son, Sviðs­stjóri Nátt­úru­stofu Suð­aust­ur­lands og Leifur Örn Svav­ars­son, fjalla­leið­sögu­mað­ur.

Auglýsing

Tind­ur­inn sem um ræðir er 1.374 metrar á hæð og er um 2,5 kíló­metra vestan frá Geir­vörtum og um 4 kíló­metra norð­austur af Hágöngum og er innan Skaft­ár­hrepps.

Í bréfi sem þre­menn­ing­arnir sendu sveit­ar­stjórn kemur fram að hann til­heyri Þórð­ar­hyrn­u-eld­stöðv­ar­kerf­inu sem er virk meg­in­eld­stöð, og tengdur hnjúka­röð með stefnu í Þórð­ar­hyrnu. Aðrir tindar í þess­ari hnjúka­röð eru þó á kafi í jökli og sjást ekki, en þeir komu fram í íssjár­mæl­ingum Helga Björns­sonar jökla­fræð­ings sem voru gerðar á síð­ustu ára­tug­um, til þess að rann­saka botn Vatna­jök­uls. Umræddur tindur mun þó hafa staðið upp úr jök­ul­yf­ir­borð­inu, alla vega á 20. öld.

Rauða örin bendir á nafnlausa tindinn.

Sam­kvæmt íslenskri eld­fjalla­sjá hefur virkni þó verið lítil í þess­ari meg­in­eld­stöð síð­ustu 10-12 þús­und ár en síð­asta gos var þó árið 1903.

Til suð­urs frá tind­inum skríður Beina­dals­jök­ull en að norðan og vestan Síðu­jök­ull. Hann er mynd­aður úr rýó­líti (líp­ar­ít) og nokkuð ljós-/grá­leitur ásýnd­ar. Tind­ur­inn rís um 60 metra upp úr jökl­inum og þar sem hann er svip­aður að hæð og Geir­vörtur sést hann víða að. Til suð­urs frá honum er fjalls­hrygg­ur, einnig í jökli, en hefur orðið sífellt meira áber­andi á síð­ustu árum vegna hörf­andi jökla. „Með tíð og tíma á tind­ur­inn sjálfur eftir að verða jafn­vel enn meira áber­andi vegna jökla­rýrn­un­ar,“ skrifa þre­menn­ing­arn­ir.

„Við leggjum til að hann verði nefndur Helga­tind­ur, til heið­urs Helga Björns­syni jökla­fræð­ing­i,“ skrifa þeir svo.

Kort­lagði allan botn Vatna­jök­uls

Helgi Björns­son pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands hefur ára­tugum saman rann­sakað jökla lands­ins, ásamt sam­starfs­mönnum sín­um. Meðal ann­ars kort­lagt allan botn Vatna­jök­uls með ísjá þannig að hægt var að sjá nákvæm­lega lands­lagið undir jökl­in­um. „Um er að ræða mikið vís­inda­legt afrek sem hefur haft ómet­an­leg áhrif á þekk­ingu á jökla­fræði á Íslandi og í heim­in­um,“ segir í bréf­inu.

Vegna þess­arar kort­lagn­ingar hefur verið hægt að útbúa spálíkön um fram­tíð jöklanna, með til­liti til lofts­lags­breyt­inga, afmarka vatna­svið ein­stakra skrið­jökla sem sumir eru vatns­forða­búr til raf­orku­fram­leiðslu, meta jökla­bú­skap og leggja til gögn sem nýt­ast í að meta hvernig þeir hafa þró­ast frá land­námi.

Auglýsing

„Með þessu merka fram­lagi hafa opn­ast ný tæki­færi til þess að auka þekk­ingu okkar enn frekar á íslenskum jökl­um. Með þess­ari nafn­gift viljum við heiðra Helga fyrir hans vís­inda­störf,“ skrifa þeir Gunn­ar, Snæv­arr og Leifur Örn og ósk­uðu svo eftir því að sveit­ar­stjórn tæki erindið til skoð­unar og afgreiðslu.

Sveit­ar­stjórnin tók erindið til afgreiðslu á fundi í síð­ustu viku og sam­þykkti sam­hljóða fyrir sitt leyti til­lögu að nýju örnefni á fjallstind­inn. Erind­inu var svo vísað til end­an­legrar ákvarð­ana­töku nafn­fræðis­viðs Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent