Vilja falla frá „bragðbanninu“ sem Willum lagði til

Meirihluti velferðarnefndar telur rétt að heimila áfram sölu á nikótínvörum með bragðefnum á Íslandi. Í nefndaráliti meirihlutans segir að það bann sem lagt var til í frumvarpi heilbrigðisráðherra hafi ekki verið nægilega vel undirbyggt.

Líneik Anna Sævarsdóttir er formaður velferðarnefndar.
Líneik Anna Sævarsdóttir er formaður velferðarnefndar.
Auglýsing

Meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar leggur til að áfram verði leyfi­legt að selja nikótín­vörur með bragð­efnum hér á landi, en þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti með breyt­ing­ar­til­lögu vegna frum­varps Will­ums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra um nikótín­vör­ur.

Í því frum­varpi var lagt til að bragð­efni í nikótín­vörum á borð við ník­ótín­púða eða vökva í rafrettur yrðu bönn­uð. Meiri­hluti nefnd­ar­innar rekur að þetta hafi verið gagn­rýnt í nokkrum umsögnum til nefnd­ar­innar og bendir einnig á að rann­sóknir á áhrifum bragð­efna í nikótín­vörum séu af skornum skammti.

Auglýsing

„Í umsögnum og umfjöllun um málið í nefnd­inni hafa komið fram mjög skiptar skoð­anir um bann við notkun bragð­efna í nikótín­vör­um. Innan nefnd­ar­innar eru jafn­framt uppi ólík sjón­ar­mið varð­andi bragð­bann. Þrátt fyrir að bann við notkun bragð­efna kunni að skila árangri til að draga úr neyslu barna og ung­menna á ník­ótín­vörum er það nið­ur­staða meiri hlut­ans að frek­ari vinnu þurfi við að greina áhrif slíkra aðgerða og mögu­legar leiðir við að fram­fylgja slíku bann­i,“ segir í umsögn meiri­hlut­ans, sem leggur til að ákvæði um „bragð­bann­ið“ verði fellt út úr frum­varp­inu.

Meiri­hlut­inn segir ljóst að meiri tíma þurfi til að útfæra slíkt bann og skjóta undir það traust­ari stoð­um. Bannið sé ekki nægi­lega vel und­ir­byggt, eins og það hafi verið sett fram í frum­varp­inu.

Þing­menn­irnir átta sem rita undir meiri­hluta­á­litið hvetja því heil­brigð­is­ráðu­neytið og eft­ir­lits­að­ila til að halda áfram að fylgj­ast með „al­þjóð­legum rann­sóknum og stefnu­mótun varð­andi áhrif bragð­efna á neyslu nikótíns og leiðum til að draga úr því.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent