Vilja reisa nýtt verslunarhúsnæði á bílaplaninu við Bauhaus

Fasteignafélagið Lambhagavegur vill fá leyfi til þess að reisa nýjan 3-4.000 fermetra verslunarkjarna á bílaplaninu við Bauhaus. Félagið gerir ráð fyrir því að þar gæti verið matvöruverslun, auk annarrar þjónustu.

Fasteignafélagið sem á verslunarhúsnæði Bauhaus vill fá leyfi til að byggja nýjan verslunarkjarna á lóðinni, sem liggur meðfram Vesturlandsvegi.
Fasteignafélagið sem á verslunarhúsnæði Bauhaus vill fá leyfi til að byggja nýjan verslunarkjarna á lóðinni, sem liggur meðfram Vesturlandsvegi.
Auglýsing

Lamb­haga­vegur fast­eigna­fé­lag ehf., sem er eig­andi versl­un­ar­hús­næðis Bauhaus, fal­ast nú eftir því við Reykja­vík­ur­borg að fá heim­ild til þess að reisa hús­næði undir mat­vöru­verslun og aðra þjón­ustu á bílaplan­inu við Bauhaus.

Fast­eigna­fé­lagið telur að mat­vöru­verslun á þessum stað muni koma til móts við þarfir auk­ins fjölda íbúa í Úlf­arsár­dal, sem í dag þurfi að aka yfir í önnur hverfi til þess að gera stórinn­kaup til heim­il­is­ins.

Þetta kemur fram í inn­sendu erindi um breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur, sem fast­eigna­fé­lagið fól lög­manns­stofu að senda til borg­ar­innar í ágúst­mán­uði. Þar segir að versl­un­ar­hús­næðið sem fast­eigna­fé­lagið sér fyrir sér að reisa sé um 3-4.000 fer­metrar og þar af yrði rými fyrir um 1.500 fer­metra mat­vöru­versl­un.

Auglýsing

Í erindi fast­eigna­fé­lags­ins segir að margt mæli með því að leyfi fáist til að setja upp mat­vöru­verslun á þessum stað. Auk þess sem þörf íbúa til þess að keyra út úr hverf­inu til þess að versla verði eytt sé stað­setn­ing­in, á mörkum stofn­brautar og tengi­brautar innan hverf­is, til þess fallin að stuðla að minni umferð innan hverf­is­ins, þar sem versl­unin sé „í leið­inni heim fyrir íbúa hverf­is­ins“.

Teikning af hugmyndum fasteignafélagsins.

„Annar aug­ljós kost­ur,“ segir í umsögn­inni, er sá að engin þörf verður á því að ryðja land undir og útbúa ný bíla­stæði, þar sem fyr­ir­huguð verslun muni nýta núver­andi stæði á lóð­inni.

Lamb­haga­vegur verði eft­ir­sóttur áfanga­staður

Í erind­inu segir frá því fast­eigna­fé­lagið vinni nú að því að koma upp hleðslu­stæðum fyrir raf­bíla, sér­stökum stæðum fyrir deili­hag­kerf­is-raf­skút­ur, hágæða hjóla­stæðum og grænum svæðum á lóð­inni, til að auð­velda aðgengi íbúa að svæð­inu og fjölga val­kostum í ferðum til og frá svæð­inu.

„Til­lögur að fyr­ir­hug­aðri mat­vöru­verslun og öðrum sér­versl­unum með góðu og þægi­legu aðgengi hjólandi og gang­andi íbúa hverf­is­ins mun gera Lamb­haga­veg 2-4 að eft­ir­sóttum áfanga­stað í teng­ingu við fram­tíðar þjón­ustu­kjarna og/eða borg­ar­línu­stöð á Keldna­holt­i,“ segir í erindi fast­eigna­fé­lags­ins, þar sem óskað er eftir fundi með full­trúum borg­ar­innar til að gera frek­ari grein fyrir til­lög­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent