Vilja skapa allt að 7.000 tímabundin störf með 4,5-5 milljarða aðgerðum

Nýtt atvinnuátak ríkisstjórnarinnar útvíkkar ráðningarstyrkina sem hafa verið til staðar til að mæta afleiðingum heimsfaraldursins. Áhersla er lögð á að skapa hvata fyrir fyrirtæki til að ráða fólk sem hefur verið lengi án atvinnu.

Katrín Jakobsdóttir og Ásmundur Einar Daðason kynntu átakið á blaðamannafundi í dag.
Katrín Jakobsdóttir og Ásmundur Einar Daðason kynntu átakið á blaðamannafundi í dag.
Auglýsing

Rík­is­stjórnin hefur sett af stað sér­stakt atvinnu­á­tak undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf“. Mark­miðið er að skapa allt að 7.000 tíma­bundin störf hjá einka­fyr­ir­tækj­um, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætl­aður kostn­aður við þessar aðgerðir eru 4,5-5 millj­arðar króna.

Frá þessu greindi Ásmundur Einar Daða­son félags- og barna­mála­ráð­herra á blaða­manna­fundi sem hann hélt í dag ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Kjarn­inn tók saman það helsta sem felst í aðgerð­un­um, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem barst frá félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Lítil fyr­ir­tæki geta fengið 472 þús­und með lang­tíma­at­vinnu­lausum

Verið er að víkka út ráðn­ing­ar­styrk­ina, en þeir eru eitt COVID-19 úrræða stjórn­valda og voru kynntir til sög­unnar síð­asta haust.

Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, með undir 70 starfs­menn, munu geta sótt um ráðn­ing­ar­styrki til þess að ráða starfs­menn sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Það mynd­ast þannig hvati fyrir fyr­ir­tæki til þess að ráða fólk til starfa sem hefur verið lengi án vinnu, en sá hópur hefur farið ört vax­andi í COVID-krepp­unni.

Vinnumálastofnun heldur utan um ráðningarstyrkina. Mynd: Skjáskot/RÚV

„Hverjum nýjum starfs­manni fylgir allt að 472 þús­und króna stuðn­ingur á mán­uði, auk 11,5% fram­lags í líf­eyr­is­sjóð, í allt að sex mán­uði og getur fyr­ir­tækið ráðið eins marga starfs­menn og það þarf þangað til heildar starfs­manna­fjöldi hefur náð 70. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er sex mán­uðir á tíma­bil­inu frá apríl til des­em­ber 2021,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Grunnatvinnu­leys­is­bætur með öllum sem hafa verið án vinnu í 30 daga

Fyr­ir­tæki af öllum stærðum munu áfram geta fengið ráðn­ing­ar­styrk sem nemur grunnatvinnu­leys­is­bótum ef þau ráða starfs­menn sem hafa verið án vinnu í 30 daga eða leng­ur. Styrk­ur­inn með hverjum starfs­menni er til allt að sex mán­aða.

Grunnatvinnu­leysi­bætur eru 307.430 krónur á mán­uði, en að auki fær fyr­ir­tækið styrk til að standa straum af 11,5 pró­sentum af fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð. Ekk­ert þak er á fjölda starfs­manna sem fyr­ir­tæki geta ráð­ið.

Allt að 472 þús­und með öllum sem eru að full­nýta bóta­rétt

Sér­stakar aðgerðir eru fyrir þá eru við það að full­nýta bóta­rétt sinn í atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu.

Vinnu­mála­stofnun greiðir ráðn­inga­styrk í allt að sex mán­uði, og er heim­ilt að lengja um aðra sex fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu, vegna ráðn­ingu ein­stak­linga sem eru við það að ljúka bóta­rétti.

Stofn­un­inni er heim­ilt að greiða ráðn­ing­ar­styrki sem nema fullum launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum að hámarki kr. 472.835 á mán­uði sem er hámark tekju­tengdra bóta auk 11,5% mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóð. Skil­yrði fyrir þessu er að ráð­inn sé ein­stak­lingur sem á sex mán­uði eða minna eftir af bóta­rétti.

Auglýsing

Sveit­ar­fé­lögum er einnig heim­ilt að ráða til sín ein­stak­linga sem full­nýttu bóta­rétt sinn innan atvinnu­leys­is­trygg­ing­ar­kerf­is­ins á tíma­bil­inu 1. októ­ber. til 31. des­em­ber 2020.

Félaga­sam­tök geta fengið styrk fyrir tíma­bundna starfs­krafta

Félaga­sam­tökum sem rekin eru til almanna­heilla og án hagn­að­ar­sjón­ar­miða er gert kleift að stofna til tíma­bund­inna átaks­verk­efna í vor og sumar með ráðn­ing­ar­styrk sem nemur fullum launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum að hámarki kr. 472.835 á mán­uði auk 11,5 pró­senta mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóð. Krafa er að þeir sem ráðnir eru til félaga­sam­taka hafi verið án atvinnu í meira en eitt ár.

Einnig verður greitt 25 pró­sent álag til þess að standa straum af kostn­aði við verk­efn­in, svo sem við land­vernd, við­hald göngu­stíga, land­hreins­un, gróð­ur­setn­ingu, íþróttir og afþr­ey­ingu fyrir börn og ung­linga og fleira.

Sum­ar­störf fyrir náms­menn kynnt síðar

Boðað er í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að stjórn­völd ætli sér að ná til þess hóps náms­manna sem ekki fær starf eða aðgang að öðru úrræði í sum­ar. Það verður kynnt síðar í sam­starfi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­ið.

Félags­-og barna­mála­ráð­herra segir að um sér að ræða „gríð­ar­lega stórar aðgerðir fyrir bæði atvinnu­leit­endur og atvinnu­líf­ið“ sem hjálpi til við öfl­uga við­spyrnu að loknum far­aldri.

„Ég hvet fyr­ir­tæki, stofn­an­ir, sveit­ar­fé­lög og félaga­sam­tök til að nýta þetta úrræði og ráða fólk. Við mætum óviss­unni með krafti og bjart­sýni og saman keyrum við þetta í gang,” er haft eftir Ásmundi Ein­ari í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Athuga­semd rit­stjórn­ar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði rang­lega að það væri nýnæmi að fyr­ir­tæki gætu fengið 100 pró­sent af grunnatvinnu­leys­is­bótum í styrk með starfs­mönnum sem hefðu verið 30 daga á atvinnu­leys­is­skrá. Þannig hefur það verið und­an­farna mán­uði, en þá á grund­velli und­an­þágu vegna mik­ils atvinnu­leysis í land­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent