Vill „vernda börnin“ og meina þeim aðgang að dragsýningum

Krafan um endurskoðun byssulöggjafar í Texas hefur verið hávær eftir skotárás í grunnskóla í Uvalde í lok maí. Þingmaður repúblikana í ríkinu telur önnur mál brýnni og undirbýr frumvarp sem bannar börnum aðgang að dragsýningum.

Pride month bandaríkin
Auglýsing

„Drag­sýn­ingar eru eng­inn staður fyrir börn.“ Þannig hefst Twitt­er-­færsla þing­manns Repúblikana­flokks­ins í full­trúa­deild Texas, sem und­ir­býr nú frum­varp sem börnum verður bannað að sækja drag­sýn­ing­ar.

Rúmum tveimur vikum eftir skotárás í grunn­skóla í smá­bænum Uvalde í Texas, þar sem 19 börn og tveir full­orðnir létu­st, hefur umræða um skot­vopna­lög­gjöf í Banda­ríkj­unum kom­ist í hámæli enn á ný. En íhalds­sami, kristni, stolti Texas­bú­inn og verj­andi frels­is­ins, eins og Bryan Slaton lýsir sér á Twitt­er, er með önnur for­gangs­mál.

„Per­ver­tískt full­orðið fólk sem vill kyn­líf­s­væða börn “

Um síð­ustu helgi hélt hinsegin bar­inn Mr. Mis­ster í Oak Lawn í Texas drag­sýn­ingu þar sem fjöl­skyldur voru vel­komn­ar. Við­burð­ur­inn, sem er hluti af Hinsegin mán­uði sem fagnað er víðs vegar í Banda­ríkj­unum í juní, féll ekki í kramið hjá hópi fólks sem blés til mót­mæla fyrir utan stað­inn og fjöl­skyldu­væna drag­sýn­ingin var einnig harð­lega gagn­rýnd á sam­fé­lags­miðl­um.

Auglýsing

Þetta vakti athygli þing­manns­ins sem til­kynnti á mánu­dag að hann ætli að leggja fram frum­varp á næsta þingi Texa­s-­ríkis þar sem börnum verði bann­aður aðgangur að drag­sýn­ing­um.

Í til­kynn­ingu sem hann sendi frá sér segir hann atburði síð­ustu helgar hafa verið óhugn­an­lega og hafi sýnt „trufl­andi til­hneig­ingu þar sem per­ver­tískt full­orðið fólk er hel­tekið af því að kyn­líf­s­væða ung börn“.

Slaton, sem starf­aði sem predik­ari um ára­tuga­skeið, á sjálfur tvö börn og seg­ist ekki getað hugsað sér að fara með þau á drag­sýn­ingu og seg­ist full­viss að það eigi líka við flokks­systk­ini sín. Það dugi hins vegar ekki til. „Að vernda börnin okkar er ekki nóg, það er á okkar ábyrgð sem lög­gjafa að bregð­ast við kyn­líf­s­væð­ing­unni sem er að eiga sér að stað þvert yfir Texa­s,“ segir í til­kynn­ingu þing­manns­ins.

Hann hefur áður látið að sér kveða í mál­efnum hinsegin fólks þegar hann barð­ist fyrir því að kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli ung­menna yrði flokkað sem barn­a­níð. Sú til­laga var felld á þing­inu í Texas á síð­asta ári.

Tals­menn hinsegin sam­fé­lags­ins í Texas segir fram­ganga þing­manns­ins ógna til­veru­rétti þeirra. Til­laga Slaton hefur aftur á móti notið tölu­verðs stuðn­ings Íhalds­manna á lands­vísu.

„Við erum greini­lega lífs­hættu­legri en byss­ur“

Dragdrottn­ingar úr einum vin­sælasta raun­veru­leika­þætti heims, RuPaul's Drag Race, hafa látið í sér heyra. Þeirra á meðal er Alyssa Edwards, en ein­kunn­ar­orð henn­ar, „Hvað í and­skot­anum er í gangi hér í dag“ eða „What the f*** is going on in here on this day?“ hafa lík­lega aldrei átt betur við.

Alyssa, sem er frá Texas, benti Sla­ter á það í færslu á Twitter að hann hafi sjálfur tíst meira um drag heldur en skotárás­ina í Uvalde. „Snýst þetta virki­lega um börnin eða snýst þetta um póli­tík?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent