Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.

Creditinfo á leið úr landi

reynir.jpg
Auglýsing

Fjár­hags- og við­skipta­upp­lýs­inga­fyr­ir­tækið Credit­info hefur hafið und­ir­bún­ing að því að flytja höf­uð­stöðvar sínar úr landi. Reynir Grét­ars­son, stærsti eig­andi Credit­info og einn stofn­enda, stað­festir yfir­vof­andi flutn­ing höf­uð­stöðv­anna frá Íslandi í sam­tali við Kjarn­ann, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mál­ið.

Reynir sendi tölvu­bréf á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra í kjöl­far þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Gunn­ars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra, um að slíta aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið og draga umsókn Íslands að sam­band­inu til baka. Þar hvatti hann ráð­herrana til að grípa til aðgerða til að bæta stöðu íslenskra fyr­ir­tækja með alþjóð­lega starf­semi og til­kynnti um ákvörð­un Credit­info að flytja höf­uð­stöðvar sínar úr landi.

Í nið­ur­lagi tölvu­bréf­ins seg­ir: „Ég tel að það eigi að vera for­gangs­verk­efni [stjórn­valda] að hlúa að rekstr­ar­um­hverfi sér­hæfðra þekk­ing­ar­fyr­ir­tækja. Það verður best gert með að finna lausnir sem ógna ekki íslensku hag­kerfi heldur þvert á móti styðja auk­inn hag­vöxt. Ég leyfi mér að leggja til að stjórn­völd bregð­ist fljótt við og finni leiðir sem eru til þess fallnar að bæta enn rekstr­ar­skil­yrði íslenskra fyr­ir­tækja. Ég er auð­vitað til­bú­inn að koma með frek­ari upp­lýs­ingar eða á annan hátt aðstoða við að finna lausn á vand­an­um.“ Engin við­brögð hafa borist frá áður­nefndum ráð­herrum við tölvu­bréf­inu.

Auglýsing

Í dag starfa hátt í þrjú hund­ruð manns hjá Credit­info í sautján löndum víðs vegar um heim­inn, þar af um sex­tíu á Íslandi. Credit­info Group, sem er móð­ur­fé­lag Credit­in­fo, var á árunum 2004 til 2008 valið eitt af 500 fram­sækn­ustu frum­kvöðla­fyr­ir­tækjum Evr­ópu af sam­tök­unum Europe's Entreprene­urs for Growth. Hagn­aður Credit­info Group fyrir fjár­magnsliði, skatta og afskriftir á síð­asta ári nam (EBIT­DA) tæp­lega 3,4 millj­ónum evra eða röskum hálfum millj­arði íslenskra króna.

Credit­info hefur þar með bæst í hóp íslenskra frum­kvöðla­fyr­ir­tækja sem hyggur á brott­hvarf frá Íslandi vegna gjald­eyr­is­hafta og efna­hags­á­stands­ins. Kjarn­inn hefur greint frá því að þrýst­ingur erlendra hlut­hafa Mar­els, CCP og Öss­ur­ar, um að flytja skuli höf­uð­stöðvar fyr­ir­tækj­anna úr landi, fari ört vax­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjarninn
None