Gunnar Valþórsson, fréttamaður og gítarleikari í Strigaskóm nr. 42, svaraði sjö spurningum í síðasta Kjarna.
Hvað gleður þig mest þessa dagana?
Góða veðrið og börnin mín.
Hvert er helsta áhugamál þitt?
Ég spila á gítar í Strigaskóm nr. 42. Það er aðaláhugamálið og ég er orðinn verulega spenntur fyrir menningarviðburðinum Eistnaflugi í Neskaupstað í sumar.
Hvaða bók lastu síðast?
Palo Alto eftir Hollywood-stjörnuna James Franco. Hann kom mér skemmtilega á óvart.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
HAM er besta hljómsveit í heimi og þar af leiðandi er uppáhaldslagið með HAM. Erfitt að gera upp á milli, en Dimitri er sennilega mitt uppáhalds. Enda skírði ég köttinn minn einu sinni í höfuðið á laginu.
Til hvaða ráðherra berðu mest traust?
Ætli það sé ekki fjármálaráðherra.
Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?
Um þessar mundir er þetta auðveld spurning. Brasilía yrði alltaf fyrir valinu. Ef ég gæti reddað miða á leik með Frakklandi væri það ekki verra.
Hvaða fer mest í taugarnar á þér?
Þröngsýni og fordómar fara óstjórnlega mikið í taugarnar á mér.
[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/34[/embed]