Sigrún Ósk Kristjánsdóttir dagskrárgerðarkona svarar sjö spurningum.
Hvað gleður þig mest þessa dagana?
Synir mínir, sólardagarnir sem ágúst bauð upp á og nýja kaffivélin mín. Svo er ég svo einföld sál að ég gleðst alltaf yfir því þegar afmælisdagurinn minn nálgast. Niðurtalning er hafin.
Hvert er helsta áhugamál þitt?
Internetið.
Hvaða bók lastu síðast?
Við Jóhanna. Var að klára hana í fyrradag. Örlítið á eftir áætlun.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Ég fæ aldrei nóg af I See Fire með Ed Sheeran.
Til hvaða ráðherra berðu mest traust?
Pass.
Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?
Perú. Engin spurning.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Fordómar, neikvæðni og vont nammi.