Hismið: Flóknara að ferðast til Norður-Kóreu en Benedorm

Hismið er að venju á dag­skrá í dag, fimmtu­dag, og í þetta skiptið er Arnar Þór Stef­áns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður gestur þeirra Árna Helga­sonar og Grét­ars Theo­dórs­son­ar. Arnar Þór er gestur His­m­is­ins vegna þess að hann ferð­að­ist fyrir nokkrum árum til Norð­ur­-Kóreu. Hismið er því aldrei þessu vant þema­tengt: Fjallað er um landið skrýtna á Kóreu­skaga.

„Það er oft merki­legt að lesa þessar fréttir því þær eru sagðir í „James Bond-ó­þokka stíl“, maður veit ekki hvort maður á að hlægja eða gráta þegar maður les þær,“ útskýrir Árni. Ekki hafa margir Íslend­ingar farið til Norð­ur­-Kóreu. Arnar Þór fór þangað ásamt félögum sínum í júlí 2008 eftir að hafa velt ræki­lega fyrir sér hvað hann ætti til bragðs að taka í sum­ar­frí­inu.

Af Bene­dorm og Norð­ur­-Kóreu varð Alþýðu­lýð­veldið Norð­ur­-Kórea fyrir val­inu. Þangað er hins vegar mun flókn­ara að ­ferð­ast en til hefð­bund­inna sól­ar­landa, eins og Arnar Þór lýsir í stór­skemmti­legu spjalli sínu við His­mis­menn.

 

[caption id="attach­ment_9009" align="alignno­ne" width="1000"]Grétar, Árni og Arnar Þór ræddu ferðalög til Norður-Kóreu í Hisminu. Grét­ar, Árni og Arnar Þór ræddu ferða­lög til Norð­ur­-Kóreu í Hism­in­u.[/caption]

Hlust­aðu á þátt­inn í spil­ar­anum hér að ofan eða í hlað­varps­straumi Kjarn­ans í snjall­tæk­inu þínu.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023