Raddir margbreytileikans er mannfræðihlaðvarp þar sem rætt verður við íslenska mannfræðinga um það sem þeir eru að rannsaka. Einnig verður rætt við erlenda fræðimenn þegar færi gefst. Í öðrum þætti er rætt við Evu Hrönn Árelíusd. Jörgensen, doktorsnema við Háskóla Íslands, um mastersnám hennar erlendis og doktorsrannsókn hennar.
Eva Hrönn er með MSc próf í heilsumannfræði frá UCL háskóla í London og MA próf í miðjarðarhafsfornleifafræði frá EKPA háskóla í Aþenu. Hún vinnur nú að doktorsrannsókn sinni sem fjallar um reynslu ungmenna af COVID-19 heimsfaraldrinum.
Í þessum þætti ræðir Eva Hrönn um rannsóknina sína, áhrif COVID-19 á ungmenni Íslands og áhrif COVID-19 á rannsóknina sjálfa. Einnig segir hún okkur frá lífinu í Aþenu og London, hvernig hún ákvað að fara í mannfræði og upplifun sína af háskólanámi erlendis.
Umsjónarfólk hlaðvarpsins eru Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Kristján Þór Sigurðsson og Sandra Smáradóttir.