Í skugga Juventus

Í þessum þætti af Sparkvarp­inu er spjallað um litla liðið í Tor­ino, Tor­ino FC. Liðið hefur verið á tals­verðu flakki upp og niður Serie A-deild­ina á síð­ustu árum og hafa þurft að lifa í skugga Juventus, stóra bróður síns í Tor­ino. Strák­arnir fóru yfir gengi Tor­ino og mögu­leika þeirra í ár, ásamt því að ræða ein­staka leik­menn í lið­inu.

Frægt var í sumar þegar Joe Hart lands­liðs­mark­maður Eng­lands fór á láni til liðs­ins en við­skiptin voru ein þau óvænt­ustu síð­ast­liðið sum­ar, ekki síst vegna slæms gengis hjá Eng­lend­ingum í Ítölskum fót­bolta. Sparkvarpið rifj­aði upp nokkra leik­menn sem fóru til Ítalíu frá Englandi og ræddu um hvernig þeim gekk.

Þeir taka einnig fyrir sögu Tor­ino en klúbb­ur­inn á sér mikla sorg­ar­sögu og segja margir að þeir hafi ekki náð að jafna sig á þeim atburðum sem gerð­ust enn þann dag í dag.

Það var þannig að árið 1949 fórst eitt besta fót­boltalið allra tíma í flug­slysi. Slysið hafði gríð­ar­leg áhrif á klúbb­inn sem og ítölsku þjóð­ina því að liðið var á þeim tíma fjór­faldir Ítal­íu­meist­arar og á leið­inni að vinna sinn fimmta í röð.

Spurn­ingin er hvort að þessi forn­frægi klúbbur muni ein­hvern tím­ann ná sömu hæðum á ný?

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023