Afríkukeppnin: Leynd perla á Eurosport

Riyad Mahrez með Alsír.

Afr­íku­keppnin í fót­bolta hefst næsta laug­ar­dag, 14. jan­úar þegar keppnin verður flautuð á í 31. skipti í Gabon. Fyrsti Sparkvarps­þáttur árs­ins fjallar um Afr­íku­keppn­ina og afrískan fót­bolta. Í þætt­inum er farið yfir liðin sem eru lík­leg­ust til sig­urs á mót­inu og fjallað sér­stak­lega um þrjú Afr­íku­lönd; Úganda, Gabon og Egypta­land.

Úganda er að taka þátt í keppn­inni í fyrsta sinn í 39 ár, heima­menn í Gabon ætla sér stóra hluti á mót­inu og Egypta­land er sig­ur­sælasta þjóð móts­ins. Miklar vænt­ingar eru gerðar til þjóð­anna frá Norð­ur­-Afr­íku í aðdrag­anda móts­ins og Egypta­land er talið sig­ur­stran­leg­ast. Alsír­ingar búast sömu­leiðis við góðu gengi en besti leik­maður þeirra, Riyad Mahrez, var á dög­unum kos­inn besti leik­maður álf­unnar 2016.

Auk þess að ræða mótið sjálft töl­uðu þeir einnig um fót­bolt­ann í Afr­íku, vin­sældir lið­anna, sögur úr deild­ar­keppnum og helstu vanda­mál bolt­ans í Afr­íku.

Þeir Þor­geir Loga­son, Árni Þórður Rand­vers­son og Þór­hallur Vals­son eru umsjón­ar­menn þátt­ar­ins. Þeir spáðu einnig í spilin fyrir árið 2017 í fót­bolta­heim­in­um. Hvaða leik­maður mun koma upp á sjón­var­sviðið 2017, hvaða lið mun kom­ast upp í ensku úrvals­deild­ina, hvaða leik­maður verður dýrastur á árinu og fleira.

Í lokin var ryk­inu svo dustað af kist­unni. Það var sagan af Al-Saadi Gad­hafi, syni fyrrum ein­ræð­is­herra Lýbíu sem kom upp úr henni í þetta sinn. Al-Saadi Gad­hafi lék um skeið á Ítalíu fyrir Perugia og Udi­nese og spil­aði heilar 20 mín­útur í Seríu A á 3 árum. Saga hans í bolt­anum er ótru­leg en hann mun seint vera álit­inn góður fót­bolta­maður þrátt fyrir að hafa meðal ann­ars haft Mara­dona sem per­sónu­legan ráð­gjafa.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023