Baskahéraðið: Stolt, hefð og fótbolti

Alfreð Finnbogason lék með Real Sociedad á árunum 2014 til 2016.

Í Sparkvarpi vik­unnar var Baska­hér­aðið á Spáni tekið fyr­ir. Þar eru fjögur lið sem keppa í La Liga, efstu deild­inni á Spáni. Það eru Deportivo Ala­ves, Athletic Bil­bao, Real Sociedad og Eib­ar. Auk þess er Osa­suna, sem er innan Stóra-Baska­hér­aðs­ins einnig í efstu deild.

Athletic Bil­bao hafa verið þekktir fyrir „canter­a-­stefn­una“ sína sem er nokk­urs konar óskrifuð regla innan félags­ins. Stefnan var tekin upp árið 1912 og síðan þá hefur liðið fylgt því eft­ir. Hún er fólgin í því að ein­ungis baskneskir leik­menn eða leik­menn sem alast þar upp mega spila fyrir félag­ið.

Real Sociedad, næst sig­ur­sælasta liðið í Baska­hér­aði var áður fyrr einnig með sam­líka stefnu en hætti henni svo 1989 þegar liðið keypti John Aldridge frá Liver­pool. Innan liðs­ins leið mönnum eins og þeir sætu eftir í sam­keppni við stór­lið eins og Barcelona og Real Madrid og lagði hana því þá nið­ur.

Ævin­týri Eibars er ótrú­leg, liðið er á sínu öðru ári í La Liga en kom upp í deild­ina í fyrra eftir að hafa farið beint upp í aðra deild árinu áður. Bær­inn Eibar telur 27 þús­und manns og er fámenn­ari en Kópa­vog­ur.

Strák­arnir fóru yfir það merki­leg­asta við þessi lið ásamt því að tala um stolt fólks­ins í Baska­hér­aði. Þá rifj­uðu þeir upp merki­legan leik milli Real Sociedad og Athetlic Bil­bao (árið 1976) en það var fyrir allt annað en fót­bolt­ann sem var spil­aður þann dag.

Rígur þess­ara nágranna­liða hefur fengið stimp­il­inn sem vina­leg­asti granna­slagur í bolt­anum en þó eru líka heitar til­finn­ing­arnar beggja stuðn­ings­manna í garð hins liðs­ins.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023