Árni, Þorgeir og Þórhallur eru mættir aftur með Sparkvarpið eftir nokkurra vikna sumarfrí. Að þessu sinni einblína þeir á sambandslýðveldið Þýskaland. Farið er yfir fall 1860 Munchen úr 2.Bundesligunni. Liðið tapaði nýverið í umspili gegn Jahn Regensburg og féll ekki niður um eina heldur tvær deildir, alla leið niður í fjórðu deild vegna þess að þeir neituðu að greiða þáttökugjald fyrir þriðju deildina.
Eigandi þeirra, Hasan Ismaik hefur stöðvað allt innstreymi peninga í klúbbinn og hótaði um daginn að hefja mál fyrir dómstólum vegna 50+1 reglunar í Þýskalandi. Reglan segir til um að enginn utanaðkomandi aðili megi hafa meira en 50 prósent ákvörðunarvald innan félaga í Bundesligunni.
Mikil umræða hefur skapast á milli félaga í Bundesligunni hvort það eigi að leggja niður þessa reglu, sérstaklega vegna þess að félög eins og RB Leipzig hafa fundið hjáleiðir fram hjá reglunni. Strákarnir ræddu hvað það myndi mögulega hafa í för með sér og hvort að deildin myndi hagnast af slíkri ákvörðun.
Ásamt því að ræða um 50+1 og ljónin í 1860 Munchen opnar Sparkvarpið kistuna. Kistan er dagskrárliður sem lítur til baka á áhugaverða atburði í fótboltasögunni. Að þessu sinni var fjallað um Berliner FC Dynamo, sem unnu 10 titla í röð á árunum 1979-1988. Liðið var ansi umdeilt og í eigu leynilögreglunnar Stasi sem notaði allt sitt vald svo liðinu gengi sem best.