Íslenskir dómarar keppa bara við atvinnumenn

Í þessum þætti Sparkvarps­ins var umræð­unni beint að starfi knatt­spyrnu­dóm­ar­ans. Þór­hallur og Þor­geir fengu til sín góðan gest, milli­ríkja­dóm­ar­ann Gunnar Jarl Jóns­son til að ræða mál­in. Gunnar hefur í nokk­urt skeið verið fremstur í flokki dóm­ara hér á landi ásamt því að dæma í Evr­ópu.

Umræða þátt­ar­ins sner­ist aðal­lega um almenna gagn­rýni á dóm­ara. Oftar en ekki er umfjöllun ansi nei­kvæð í garð dóm­ar­ans, bæði hér heima og í öðrum lönd­um. Gunnar tal­aði einnig um verk­efni íslenskra dóm­ara erlendis en sjaldan hafa verk­efnin verið jafn mörg eins og nú. Pressan er hins vegar gríð­ar­leg frá UEFA en þeir setja háan staðal á frammi­stöðu dóm­ara. Íslenskir dóm­arar keppa aðeins við atvinnu­menn í þessum geira. Það er nán­ast án und­an­tekn­inga að dóm­arar þurfi að eiga topp­leik til þess að kom­ast lengra eða halda starfi sínu sam­kvæmt Gunn­ari.

Að auki töl­uðu strák­arnir um þær tækninýj­ungar sem hafa komið inn í fót­bolt­ann á síð­ustu miss­erum og hvernig þær hafa virk­að.

Þátt­ur­inn er sá þriðji í íslenskri syrpu þeirra Sparkvarps­manna um íslenska bolt­ann.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023