Apple heldur sína árlegu tækniráðstefnu í vikunni og byrjaði hana á mánudaginn með upptekinni lykilræðu þar sem starfsfólk rennur yfir það nýjasta í stýrikerfum Apple. Ráðstefnan var sneisafull af hugbúnaðaruppfærslum en ekkert bólaði á nýjum Macbook Pro-tölvum sem mörg áttu von á. Einnig var lítið að frétta af öflugum tólum fyrir nýjar iPad Pro-tölvur.
Stjórnendur eru Andri Valur og Atli Stefán. Við fáum til okkar góðan gest, hann Sigurð Stefán Flygenring frá Macland til að fara yfir þetta með okkur.