Þjóðhættir – Galdurinn við súrdeigsbakstur

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Ragn­heiði Maísól Sturlu­dótt­ur, meist­ara­nema í þjóð­fræði. Ragn­heiður Maísól er menntuð í mynd­list en stundar nú meist­ara­nám í þjóð­fræði við Háskóla Íslands. Rann­sókn hennar snýr að súr­deigs­bakstri á Íslandi. Ragn­heiður bakar sjálf súr­deigs­brauð og hefur verið virk í sam­fé­lagi súr­deigs­bak­ara en hún stjórnar stórum Face­book-hópi um bakstur af þessu tagi og heldur úti blogg­síðu. Það má því segja að hún hafi gert áhuga­mál sitt og ástríðu að rann­sókn­ar­verk­efni.

Súr­deigs­bakstur varð sér­stak­lega vin­sæll þegar Covid gekk yfir enda var fólk þá meira heima við en áður. Ragn­heiður Maísól segir frá því að súr­inn fái oft mann­leg ein­kenni. Til dæmis sé oft hægt að rekja ættir hans langt aftur og margir bera sér­stök nöfn, en sam­kvæmt Ragn­heiði er nafnið Gísli Súrs­son lík­lega það vin­sælasta á Íslandi. Það þarf líka að hugsa um súr­inn en hann hagar sér á ólíkan hátt. Þá segir Ragn­heiður frá tengslum súr­deigs­bak­ara við súr­inn og bakst­ur­inn og hvernig hann verður hluti af sjálfs­mynd þeirra sem baka.

Rann­sókn Ragn­heiðar Maísól er hluti af þver­fag­lega rann­sókn­ar­verk­efn­inu Sam­líf­i/­SYMBIOSIS sem hlaut önd­veg­is­styrk frá Rannís. Í verk­efn­inu leiða saman hesta sína mat­væla­fræð­ing­ar, nær­ing­ar­fræð­ing­ar, örveru­fræð­ing­ar, mann­fræð­ingar og þjóð­fræð­ingar og skoða sam­lífi manna og örvera.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa dr. Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir kenn­arar í þjóð­fræði við Háskóla Íslands.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023