Þjóðhættir – Ábyrg ferðaþjónusta í Grímsey

Það má sann­ar­lega segja að dýra­lækn­ir­inn Laufey Har­alds­dóttir hafi undið sínu kvæði í kross þegar hún ákvað að læra þjóð­fræði. Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Lauf­eyju

Laufey starfar nú sem lektor við ferða­mála­deild Háskól­ans á Hól­um. Laufey segir frá nám­inu við ferða­mála­deild­ina en þar eru allar náms­leiðir í boði í fjar­námi. Laufey segir einnig frá rann­sóknum sínum á sviði ferða­mála­fræða, meðal ann­ars áhuga­verðri rann­sókn um ferða­mennsku í Gríms­ey.

Í rann­sókn­inni voru spurn­inga­skrár lagðar fyrir ferða­menn sem heim­sækja eyna en að auki voru ferðir gesta kort­lagðar með GPS stað­setn­ing­ar­bún­aði. Gögnin veita áhuga­verða inn­sýn í við­horf ferða­manna til Gríms­eyjar sem og hvernig þeir ferð­ast um eyj­una meðan á dvöl þeirra stend­ur. Nið­ur­stöð­urnar munu meðal ann­ars nýt­ast heima­mönnum til að hlúa betur að ábyrgri ferða­mennsku í eynni. Laufey ræðir einnig ímynd Gríms­eyjar sem sem áfanga­staðs fyrir ferða­menn, sem teng­ist ímynd norð­urs­ins og þess afskekkta. Þá segir Laufey einnig frá nýrri og spenn­andi rann­sókn sem hún er að fara af stað með og fjallar um hand­verk á norð­ur­slóð­um.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa dr. Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir kenn­arar í þjóð­fræði við Háskóla Íslands.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023