Þjóðhættir – Sjálfbærni og sköpun á Hallormsstað

Í þætt­inum ræðir Vil­helm­ína við Sig­rúnu Hönn­u Þor­gríms­dóttur þjóð­fræð­ing en hún starfar sem fag­stjóri náms í sjálf­bærni og sköpun við Hall­orms­staða­skóla.

Sig­rún Hanna ­segir frá nám­inu í Hall­orms­staða­skóla. Skól­inn er stað­settur í miðjum Hall­orms­staða­skógi, í afar fal­legu og reisu­legu húsi sem áður hýsti Hús­stjórn­ar­skól­ann á Hall­orms­stað. Námið byggir því á sterkum grunni en í 90 ár hefur kennsla á Hall­orms­stað ein­kennst af áhersl­u­m á nýt­ing­ar­mögu­leika og sjálf­bærni. Námsum­hverf­ið er ein­stakt og er umhverfið allt mik­il­vægt kennslu­rými enda er lögð áhersla á stað­bundin hrá­efni og auð­lindir í nám­inu.

Við skól­ann er nú boðið upp á 60 ein­inga þver­fræði­legt nám á háskóla­stigi í sjálf­bærni og sköp­un. Í nám­inu er lögð áhersla á sjálf­bærni­þekk­ingu, vist­kerf­is­vit­und, sið­ferði nátt­úr­u­nytja og að nem­endur til­einki sér skap­andi og gagn­rýna hugs­un. Námið er bæði bók­legt og verk­legt sem og mjög verk­efna­mið­að. Í nám­inu er rík áhersla lögð á hand­verks- og nátt­úru­þekk­ingu og nem­endur um leið hvattir til að takast á við hin stóru við­fangs­efni sam­tím­ans. Í nám­inu er einnig lögð sér­stök áhersla á hag­nýt­ingu og segir Sig­rún Hanna frá áhuga­verðum fyr­ir­tækjum sem fyrrum nem­endur hafa stofnað eftir nám í skól­an­um. 

Þá segir Sig­rún Hanna frá yfir­stand­andi dokt­ors­rann­sókn sinni við Gauta­borg­ar­há­skóla. Þar rann­sakar hún sam­band fólks og hand­verks við upp­gerð eldri húsa. Að gera upp gam­alt hús er stórt og oft flókið verk­efni. Í gegnum það ferli fær fólk oft og tíðum auk­inn áhuga og ástríðu fyrir hand­verki og til­einkar sér vinnu­brögð og verk­þekk­ingu. Sig­rún Hanna ræðir ólík við­horf sem birt­ast í tengslum við þetta ferli og hvernig rann­saka má þekk­ingu í gegnum hand­verk.  

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa dr. Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir kenn­arar í þjóð­fræði við Háskóla Íslands.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023