Þjóðhættir – Hættið þessu fikti strákar!

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Særúnu Lísu Birg­is­dóttur þjóð­fræð­ing. Særún Lísa segir frá nýrri bók sinni sem nefn­ist Hættið þessu fikti strák­ar! Bókin fjallar um homma í íslensku sam­fé­lagi og menn­ingu, frá tímum Íslend­inga­sagn­anna og fram yfir her­nám.

Áhug­ann á efn­inu fékk Særún strax í þjóð­fræði­námi sínu, upp­haf­lega í nám­skeið­inu Söfnun þjóð­fræða, en svo þró­að­ist áhug­inn, efnið og rann­sóknin og hún vann úr því bæði í BA-­rit­gerð sinni og meist­ara­rit­gerð. Í rann­sókn­inni byggir hún meðal ann­ars á frá­sögnum og við­tölum við karl­menn sem voru í „ástand­inu“ á her­náms­ár­un­um. Þá byggir hún einnig á dag­bók­ar­skrif­um, blaðaum­fjöllun og fleiru um við­horf til sam­kyn­hneigðra manna.

Með bók­inni seg­ist Særún Lísa vilja veita hommum for­tíðar upp­reist æru með því að draga sögur þeirra fram í dags­ljós­ið. Hún segir einnig að bókin sjálf eigi að vera fal­legur prent­grip­ur, áber­andi og skín­andi fögur svo hún lendi ekki inni í skáp eins og margir af við­mæl­endum hennar gerðu. Ingi­björg Soffía Odds­dótt­ir, graf­ískur hönn­uð­ur, hann­aði bók­ina og er hún prýdd verkum eftir mynd­list­ar­kon­una Írisi Auði Jóns­dótt­ur.

Særún Lísa safnar nú fyrir útgáfu bók­ar­innar með hóp­fjár­mögn­un. Þau sem vilja kynna sér bók­ina og styðja við útgáfu hennar geta skoðað verk­efnið nánar á Karol­ina Fund.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa dr. Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir kenn­arar í þjóð­fræði við Háskóla Íslands.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023