Þjóðhættir – Galdrabrennur, lækningajurtir, þjóðfræði og ritstörf

Doktor Ólína Kjer­úlf Þor­varð­ar­dóttir hefur komið víða við í gegnum tíð­ina. Lengi vel kenndi hún þjóð­fræði í Háskóla Íslands og í rit­störfum sínum hefur hún feng­ist við þjóð­fræði­legt efni. Ólína hefur meðal ann­ars gefið út bækur um galdra, lækn­inga­jurtir og nú síð­ast bók­ina Ilm­reyr. Í þætt­inum ræðir Dag­rún Ósk við Ólínu um þjóð­fræði og rit­störf­in.

Ólína hefur rann­sakað brennu­öld­ina á Íslandi, galdra og galdra­trú. Í rann­sókn­inni studd­ist Ólína bæði við dóms­skjöl og þjóð­sögur og segir hún frá hvernig þessar ólíku heim­ildir opin­bera áhuga­verðan mun á við­horfi til galdra­fólks. Með galdra­fár­inu varð hug­ar­fars­breyt­ing sem gerði það að verkum að fólk var brennt fyrir galdra víða í Evr­ópu, en galdra­brennur á Íslandi eru sér­stakar að því leyti að fleiri karlar en konur urðu eld­inum að bráð.

Ólína segir einnig frá bók sinni Lífs­grös og leyndir dómar sem byggir á rann­sókn hennar á grasa­lækn­inga­hefð­um. Á Íslandi er rík alþýðu­lækn­inga­hefð, bæði í for­tíð og sam­tíð en auk þess ræðir Ólína um hlut kvenna í lækn­inga­sög­unni.

Í nýjastu bók sinni, Ilm­reyr, er Ólína á per­sónu­legri nót­um. Bókin er kveðja frá dóttur til móður en um leið óður til for­mæðra og -feðra sem háðu lífs­stríð sitt vestur á fjörð­um. Þó bókin sé per­sónu­leg er hún ekki síður saga þjóðar og ald­ar­speg­ill. Í þætt­inum segir Ólína frá bók­inni og æskuminn­ingum sínum að vest­an, sögum af björg­un­ara­frek­inu við Látra­bjarg og röskun á álaga­bletti.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023