Þjóðhættir – Gamla höfnin í Reykjavík, örverur, kombucha og súrdeig

Hvað eiga gamla höfnin í Reykja­vík, kombucha, súr­deig og örverur sam­eig­in­legt? Jú, þetta eru allt við­fangs­efni sama þjóð­fræð­ings­ins.

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Áka Guðna Karls­son dokt­or­snema í þjóð­fræði og verk­efn­is­stjóra. Áki segir frá nýlegri rann­sókn sinni á gömlu höfn­inni í Reykja­vík. Á und­an­förnum árum hafa orðið gríð­ar­legar breyt­ingar og upp­bygg­ing á höfn­inni, allt frá Hörpu tón­list­ar­húsi og út á Granda. Áki segir frá efn­is­menn­ingu hafn­ar­inn­ar, hvernig lesa má breyt­ingar í umhverf­inu og hvaða áhrif þær hafa. Þá hafa reglur um meng­un, úrgang og öryggi líka breyst. Þar sem áður var tjöru- og fiski­lykt má nú finna mat­ar­ilm frá veit­inga­stöð­um. Þannig end­ur­spegla breyt­ingar á höfn­inni að vissu leyti þær breyt­ingar sem eru að verða í sam­fé­lag­inu á hverjum tíma.

Áki segir einnig frá nýju þver­fag­legu rann­sókn­ar­verk­efni sem hlaut önd­veg­is­styrk frá Rannís. Í verk­efn­inu leiða saman hesta sína mat­væla­fræð­ing­ar, nær­ing­ar­fræð­ing­ar, örveru­fræð­ing­ar, mann­fræð­ingar og þjóð­fræð­ing­ar. Áki starfar sem fræði­legur verk­efn­is­stjóri en hann segir frá verk­efn­inu og mark­miði þess sem er að kort­leggja sam­býli fólks og örvera. Þáttur þjóð­fræð­inga í verk­efn­inu snýr meðal ann­ars að mat­ar­háttum og sam­starfi manna og örvera til dæmis við skyr­gerð, súr­deigs­bakst­ur, kombuchagerð og fleira. Um er að ræða afar for­vitni­legt verk­efni sem verður áhuga­vert að fylgj­ast með í fram­tíð­inni.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023