Hvar voru framsóknarmennirnir?

framsokn.jpg
Auglýsing

Á Alþingi í morgun fór fram sér­stök umræða um verð­trygg­ing­una. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, var upp­hafs­maður umræð­unnar og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var til svara. Ell­efu þing­menn tóku þátt í umræð­unni, að Helga og Bjarna með­töld­um. 

Þing­menn vöktu athygli á því í umræð­unni að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son tók ekki þátt, og var raunar ekki einu sinni í þingsal, þegar umræðan fór fram. Hann hefur í tvígang neitað að ræða málið í sér­stakri umræðu á þingi, og vísað á Bjarna Bene­dikts­son. Þó hefur hann rætt um verð­trygg­ing­una oft og víða ann­ars stað­ar, líkt og aðrir fram­sókn­ar­menn. 

Verð­trygg­ingin og afnám hennar var eitt stærsta kosn­inga­mál og kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ing­ar. Þremur árum síðar bólar ekk­ert á þessu afnámi, sem þó var sagt ein­falt og auð­velt í kosn­inga­bar­átt­unni. Það er alveg rétt sem þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar sögðu á þingi í dag, að þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa gert Bjarna Bene­dikts­son að blóra­böggli í mál­inu. Þing­menn flokks­ins hafa reglu­lega talað um afnám verð­trygg­ingar og mik­il­vægi afnáms­ins og þrýst á rík­is­stjórn­ina í mála­flokkn­um. Síð­ast fyrr í þess­ari viku komu þing­menn í ræðu­stól Alþingis til að lýsa því að lok­inni kjör­dæma­viku hversu mikið verð­trygg­ingin brenni á fólki. 

Auglýsing

Það vakti því athygli í bak­her­berg­inu að það var ekki nóg með að for­maður flokks­ins hafi ekki tekið þátt, heldur tók aðeins einn þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins þátt í umræð­unni, Willum Þór Þórs­son.

Hvar voru fram­sókn­ar­menn­irn­ir? Af hverju voru þeir ekki mættir til að taka þátt í þess­ari umræðu um eitt þeirra stærsta bar­áttu­mál? 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None