Taívan matarhneyksli
Auglýsing

Fram­sýn stétt­ar­fé­lag benti á ágætan punkt á vef sínum á dög­un­um, sem snéri að verð­lagn­ingu versl­ana.

Í frétt á vef Fram­sýnar var frá því greint, sem var til umræðu á dög­un­um, að nið­ur­fell­ing tolla hefði ekki skilað sér í lægra verði í versl­un­um. „Mæld­ust þessar aðgerðir vel fyrir meðal almenn­ings enda átti þessi laga­breyt­ing að skila 13% lægra verði til neyt­enda að með­al­tali af þeim vörum sem báru tolla áður,“ sagði í frétt­inn­i. 

Sam­kvæmt úttekt verð­lags­eft­ir­lits ASÍ þá hafa þessar aðgerðir ekki skilað því sem til var ætl­ast. Versl­anir hafa greini­lega hækkað verð eftir útsölur og er hækk­unin meiri en gera mátti ráð fyr­ir. Fyrir utan nið­ur­fell­ingu tolla hefur gengi krón­unnar styrkst tölu­vert á und­an­förnum mán­uðum sem hefði átt að hjálpa til við lækkun verðs á fatn­aði og skóm. „Raunin er að versl­an­irnar eru ein­fald­lega að taka stærri hluta af kök­unn­i,“ segir í frétt Fram­sýn­ar.

Auglýsing

Nið­ur­stöður verð­lags­nefndar ASÍ má lesa í lengra máli hér, á vef ASÍ.

Í ljósi þessa má velta fyrir sé hvað ger­ist ef tollar á land­bún­að­ar­vöru verða felldir niður eins og mikið er talað fyrir víða í sam­fé­lag­inu? Er við því að búast að eitt­hvað annað ger­ist með land­bún­að­ar­vörur en að versl­unin fái stærri hluta kök­unnar í sinn hlut eins og raunin er með fatnað og skó? spyr Fram­sýn.

Það er eðli­legt að spyrja að þessu. Frelsi í verslun er bar­áttu­mál fyrir neyt­end­ur, en þó aðeins ef versl­unin í land­inu sýnir ábyrgð og glögg merki um sam­keppni, neyt­endum til heilla, sjá­ist. Því miður er nauð­syn­legt að veita fyr­ir­tækjum í smá­sölu­rekstri mikið aðhald og benda á það, þegar laga­breyt­ing­ar, sem áttu að skila neyt­endum ávinn­ingi, eru ekki að gera það. 

Það er ekki nóg að segja, að nið­ur­fell­ing tolla skili ávinn­ingi fyrir neyt­end­ur. Það verður líka að fram­kvæma hlut­ina þannig í verki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None