Til hvers eru markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins?

Páll Gunnar Pálsson
Auglýsing

Þann 20. sept­em­ber stendur Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyrir opnum fundi um sam­keppn­is­að­stæður á íslenska elds­neyt­is­mark­aðn­um. Fund­ur­inn er liður í svo­kall­aðri mark­aðs­rann­sókn sem nú stendur yfir, en með honum er kallað eftir umræðu um elds­neyt­is­mark­að­inn, hvað megi betur fara og hvort eða hvaða úrræði séu í boði.

Til grund­vallar umræð­unni liggur ann­ars vegar frum­mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem birt var í sér­stakri frum­mats­skýrslu í des­em­ber á síð­asta ári. Hins vegar byggir umræðan á sjón­ar­miðum hags­muna­að­ila sem aflað var í fram­haldi af útgáfu skýrsl­unn­ar. Frummatið og fram­komin sjón­ar­mið eru aðgengi­leg á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Til þess að mark­aðir virki sem best fyrir sam­fé­lagið

Mark­aðs­rann­sóknin á elds­neyt­is­mark­aðnum er sú fyrsta sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið fram­kvæm­ir, en hún byggir á nýlegri laga­heim­ild. Laga­heim­ildin gerir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu kleift að grípa til aðgerða gegn aðstæðum eða hátt­semi sem kemur í veg fyr­ir, tak­markar eða raskar sam­keppni, jafn­vel þótt fyr­ir­tækin sem starfa á mark­aðnum hafi ekki orðið upp­vís að laga­brot­u­m. 

Auglýsing

Þetta úrræði er mik­il­vægt, því aug­ljóst er að sam­keppn­is­hindr­anir geta stafað af margs konar aðstæðum á mark­aði, öðrum en lög­brot­um. Ýmsar aðstæður sem tengj­ast eig­in­leikum við­kom­andi mark­að­ar, skipu­lagi hans eða upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja, geta hindrað sam­keppni og þar með skaðað skil­virkni á mark­aðnum og hags­muni sam­fé­lags­ins.

Með laga­heim­ild­inni setti lög­gjaf­inn hags­muni almenn­ings í for­grunn. Almenn­ingur eigi rétt á því að mark­aðir virki sem best fyrir sam­fé­lag­ið. 

Beit­ing þessa úrræðis er hins vegar ekki vanda­laus. Ríkar skyldur eru lagðar á Sam­keppn­is­eft­ir­litið að sýna fram á sam­keppn­is­hindr­anir og að velja rétt úrræði þegar nauð­syn kref­ur. Með þetta í huga hefur eft­ir­litið kapp­kostað að laða fram sjón­ar­mið og upp­lýs­ingar sem að gagni geta kom­ið. Þannig hefur öllum verið gefið tæki­færi til að fylgj­ast náið með fram­gangi rann­sókn­ar­innar og leggja orð í belg.

Fund­ur­inn sem nú stendur fyrir dyrum er loka­á­fangi í öflun sjón­ar­miða vegna rann­sókn­ar­inn­ar. Í kjöl­far hans mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið taka afstöðu til þess hvort til staðar séu aðstæður eða hátt­semi sem skaði sam­keppni og þá hvort ráð­ast þurfi í aðgerðir til að ryðja þeim úr vegi.

Höf­undur er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None