Ég vel lífið – hvað velur þú?

Aðsend grein eftir Guðjón Sigurðsson

Guðjón Sigurðsson
Auglýsing

Að tóra eða lifa er tvennt ólíkt. 

Stundum fær maður á til­finn­ing­una að stjórn­völd reikni með að það að tóra sé full­nægj­andi aðstæður fyrir hluta þjóð­ar­inn­ar. 

Makar, ætt­ingjar og vinir eru hnepptir í þræl­dóm rík­is­ins vegna launa­lausrar vinnu við verk­efni sem ríki og sveit­ar­fé­lögum er skylt að sjá um en gera ekki. Fólk bjargar sér og lifir af, tór­ir, þrátt fyrir þessi mann­rétt­inda­brot. 

Auglýsing

En það er krafa okkar Íslend­inga að geta lifað í þessu frá­bæra landi. Að lifa er að mínu mati það að geta val­ið. Það að börnin mín geti stundað íþróttir og aðrar tóm­stund­ir. Að eiga fyrir fjöl­breyttum nær­ing­ar­ríkum mat alla daga. Að eiga fyrir lyfj­um. Að geta leitað mér lækn­is­að­stoð­ar. Að eiga fyr­ir­  ­skóla­bókum og öðru sem börn þurfa í skól­ann. Auk ann­ars sem nán­ast telst eðli­legt fyrir flesta. Það eru mann­rétt­indi.

Eitt er að fá það sem yfir­völd telja til lág­marks­fram­færslu og hitt er svo gleði yfir­valda við að hækka hlut not­enda við allt og ekk­ert. Það hækkar hlutur sjúk­linga við lyf, að leita sér lækn­inga og síð­ast en ekki síst okkar hlutur við útvegun hjálp­ar­tækja alltaf lífs­nauð­syn­legra fyrir okkur sem viljum lifa. Auð­vit­að ­gætum við lagst í bælið og lifað af, en þar skilur á milli míns og vilja yfir­valda. Ég vel líf­ið.

Minn draumur er og ósk um sam­vinnu við stjórn­völd að fækka þeim sem þurfa bætur svo betur megi gera við þá sem geta ekki annað en verið á bót­um. Þar er fyrst og fremst að gera raun­veru­legt átak í vinnu fyrir alla, hluta­störfum verður að fjölga, end­ur­menntun verður að ver­a ­fjöl­breytt og að veita okkur tæki­færi til þátt­töku í líf­inu. Hjálp­ar­tæki fylgi ein­stak­lingn­um.

Að inn­leiða/lög­leiða samn­ing Sam­ein­uðu Þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks, er fyrsta skref af mjög mörg­um. En ekki er sopið kálið þó í aus­una sé kom­ið. Þá tekur við, von­andi snörp, vinna/bar­átta til að fá yfir­völd til að fara að samn­ingn­um. Allt of mörg dæmi eru um þjóðir sem inn­leiddu samn­ing­inn fyrir mörgum árum, langt á undan Íslandi en hafa svo ekk­ert gert með hann. Það má ekki ger­ast hér. Höldum vöku okk­ar. Meðal ann­ars til að við fáum tæki­færi til sjálf­stæðs lífs.

Margt er í vinnslu sem lofar góðu hjá núver­andi stjórn­völd­um. Von­andi ber okkur gæfa til að byggja á þeim grunni, klára það sem er nán­ast í höfn en byrja ekki á hringa­vit­leys­unni enn og aft­ur. Það má nefna lög­gild­ingu NPA, hvíld­ar­pláss fyrir þá sem þurfa mikla hjúkr­un, hjúkr­un­ar­rými fyrir sama hóp, nýja hugsun varð­andi frá­flæði ein­stak­linga af sjúkra­húsum og heim til sín svo eitt­hvað sé nefnt. Ég mun kjósa þá sem ég treysti best til að halda mann­rétt­inda­málum á lofti. Mann­rétt­indi allra.

Lifið heil.

Höf­undur er for­­maður MND félags­­ins á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None