Háskólar í hættu

Grein þessi er fyrsta grein í greinaskriftaátaki Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS), til þess að vekja athygli á undirfjármögnun íslenskra háskóla.

LÍS
Auglýsing

Menntun er grunn­stoð íslensks sam­fé­lags. Hún er grunn­stoð sam­fé­lags­ins í þeim skiln­ingi að það þrífst ekki án mennt­un­ar. Menntun á háskóla­stigi er síðan okkar tól til þess að tryggja fram­þróun í sam­fé­lag­inu með rann­sóknum og miðlun þekk­ing­ar. 

Þrátt fyrir aug­ljóst mik­il­vægi íslenskra háskóla hafa þeir verið fjársveltir í langan tíma og eru nú komnir að þol­mörk­um. Þetta fjársvelti má glögg­lega sjá með því að skoða fjár­fram­lög til íslenskra háskóla til sam­an­burðar við fjár­mögnun háskóla á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Þar er háskóla­kerfið að mestu rík­is­fjár­magnað eins og hér. Fram­lög til íslenskra háskóla á hvern nem­anda er aðeins um það bil helm­ingur af fram­lögum á hvern nem­enda til háskóla á Norð­ur­lönd­un­um. Einnig hafa erlendar úttektir á íslenskum háskólum sýnt fram á að háskól­arnir hafa verið und­ir­fjár­magn­aðir frá því fyrir hrun, auk þess sem að við bætt­ist auk­inn nið­ur­skurður í kjöl­far fjölgun nem­enda í hrun­inu 2008.

Samanburður milli Norðurlanda.Það er þess vegna sem 5 ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar kom eins og blaut tuska í and­lit starfs­manna og nem­enda íslenskra háskóla. Áætl­unin gerir ráð fyrir að enn og aftur þurfi háskól­arnir að starfa und­ir­fjár­magn­að­ir. Sem íslenskum háskóla­nemum þykja okkur þessar áætl­anir vera til marks um skamm­sýni og virð­inga­leysi gagn­vart íslenska mennta­kerf­inu. 

Í kjöl­far fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar hafa rekt­orar allra 7 háskól­anna sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir skora á stjórn­mála­menn að snúa við und­ir­fjár­mögnun háskóla­stigs­ins. Í yfir­lýs­ing­unni stend­ur: „Við óbreytt ástand geta háskól­arnir ekki starfað áfram með eðli­legum hætti. Háskóla­starfi á land­inu er stefnt í hætt­u.“ Það að rekt­or­arnir komi sér saman um svo afdrátta­lausa yfir­lýs­ingu segir mikið til um alvar­leika stöð­un­ar. Rekt­or­arnir hafa einnig bent á að und­ir­fjár­mögnun sé þegar farin að bitna á gæðum háskóla­mennt­un­ar. Þetta má til dæmis sjá í fækkun náms­leiða og háu hlut­falli nem­enda á hvern kenn­ara. Taka mætti fleiri dæmi en áhrifin eru víð­tæk og hafa áhrif á alla starf­semi háskól­anna, sem og sam­fé­lagið í heild Í við­var­andi fjár­skorti eru háskól­arnir ósam­keppn­is­hæfir og kemur það til dæmis mikið niður á alþjóða­sam­starf­i. 

Auglýsing

Þrátt fyrir ára­langa und­ir­fjár­mögnun hafa kröfur til rann­sókna innan háskól­anna auk­ist þar sem sam­fé­lagið og atvinnu­lífið kalla eftir sífellt meiri þekk­ingu og sér­hæf­ingu. Kröf­urnar til íslenskra háskóla eru því á engan hátt í takt við fjár­mögnun þeirra. Það virð­ist því sem íslensk stjórn­völd ætlist til þess að háskól­arnir geti gert allt úr engu.

Áhrif mennt­unar á sam­fé­lagið eru ómet­an­leg. Nauð­yn­legt er að byggja upp íslenska háskóla á sterkum und­ir­stöðum til að tryggja vel­ferð, hag­vöxt og fram­tíð íslensks sam­fé­lags. Þess vegna taka stúd­entar undir yfir­lýs­ingar rekt­ora. Háskól­arnir eru í hættu; það verður að koma þeim til bjarg­ar. Við hvetjum því verð­andi stjórn­völd til að vera hyggin og byggja háskóla á sterkum grunni. Við hvetjum þau til að fjár­festa í mennt­un. 

Við hvetjum alla til þess að skrifa undir áskorun til stjórn­valda þess efnis að setja mennta­mál í for­gang. #há­skólarí­hættu

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None