GDS2017: Að gera vímuefnanotkun öruggari

reykur
Auglýsing

Global Drug Sur­vey (GDS) stendur fyrir heims­ins stærstu gagna­söfnun um vímu­efni, með mark­mið um að gera vímu­efna­notkun örugg­ari, óháð laga­legri stöðu efn­anna. Nýlega fór gagna­söfn­unin í loftið í sjötta skipti og er mark­miðið að ná 150.000 þátt­tak­endum í ár (yfir 100.000 þátt­tak­endur tóku þátt í fyrra og árið á und­an). Með gott lið fræði­manna, lækna, sál­fræð­inga og fjöl­miðla í yfir 20 lönd­um, er reynt að ná til sem flestra ásamt því og breiða út þekk­ingu sem víð­ast. Með hjálp tengiliða í nokkrum af stærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum heims (t.d. Guar­dianViceZEIT ONLINE og Fair­fax Media), reynum við að ein­beita okkur að þeim mál­efnum sem oft hefur verið horft fram hjá í hefð­bundnum eða jafn­vel rík­is­styrktum rann­sóknum á vímu­efna­notk­un.  Það gerum við til dæmis með því að skoða alla vímu­efna­not­end­ur, en ekki bara þá sem eiga í vanda með notk­un­ina

Mik­il­vægt er að beina athygli að því hvernig má minnka neyslu of stórra skammta, blóð­dreifða vírusa, fækka órök­réttum vímu­efna­lög­gjöfum og mann­rétt­inda­brot­u­m. GDS ber mikla virð­ingu fyrir öllum þeim sem vinna í breyt­ingum á þessum sviðum og vill leggja sitt að mörkum með því að ein­blína á notk­un­ar­mynstur fólks og fá gögn frá þeim lág­væru hópum sem eiga oft ekki í vanda með sína notkun á vímu­efn­um, en tala ekki um notkun sína sökum for­dóma í sam­fé­lag­inu. Með þess­ari aðferð má gefa fólki betri mynd af hinum „al­menna“ vímu­efna­neyt­anda. Margir leita til inter­nets­ins, í leit að svörum þegar spurn­ingar í tengslum við vímu­efni koma upp, vand­inn við það er að flestar síður sem fólk treystir á byggja á reynslu ein­stak­linga. Mark­mið GDS er að breyta reynslu hund­ruð ­þús­unda ein­stak­linga sem nota vímu­efni yfir í áreið­an­legar og not­hæfar upp­lýs­ingar um vímu­efna­notkun og skaða­minnkun sem deila má með heim­in­um. 

Að taka þátt í ár er mik­il­vægt, eins og und­an­farin ár. Síðan verk­efnið byrj­aði árið 2010, hefur heimur vímu­efna breyst mik­ið. Frá upp­risu dark­net mark­aða og hund­ruð nýrra vímu­efna til nýrra vímu­efna­lög­gjafa og rann­sókna sem hafa sýnt með­ferða­gildi MDMA og LSD. Góðar upp­lýs­ingar hafa aldrei verið jafn mik­il­væg­ar. Þetta árið hefur gagna­söfn­unin verið sett upp á þann veg að fólk geti klárað grunn­hlut­ann á um 20 mín­út­um, áður en það kemur að sér­tæk­ari hlutum sem þátt­tak­endur taka þátt í ef vilji er fyrir hendi. Í ár verður athygl­inni meðal ann­ars beint að skoð­unum þátt­tak­enda á kanna­bis í lækn­inga­skyn­i og hvaða lög­gjöf fólk vill hafa í land­inu ásamt notk­un vaporiz­ers við notkun vímu­efna. Ásamt því að fara út í micro-dos­ing af LSD og Aya­hausca með­ferð­ir.

Auglýsing

Gagna­söfn­unin er mjög nákvæm og gefur ítar­lega mynd af hverjum þátt­tak­anda sem þýðir að sviðið sem má rann­saka er mjög breitt. Þessi gögn geta því sagt okkur margt áður óþekkt um vímu­efna­notkun íslend­inga ef þátt­taka er góð í ár. GDS2017 er komin í loftið og hvetjum við alla þá sem hafa áhuga á frek­ari rann­sóknum á þessu sviði til þess að taka þátt.

Baldur Jón Gúst­afs­son, full­trúi Global Drug Sur­vey, þýddi grein­ina. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None