Tökum höndum saman

Auglýsing

Maður verður kjaft­stopp þegar fréttir ber­ast nú af illri með­ferð heim­il­is­fólks á Kópa­vogs­hæli á sjötta- og allt fram á tíunda ára­tug síð­ustu ald­ar. Enn birt­ist skýrsla sem stað­festir vonda með­ferð og mis­beit­ingu á opin­berum stofn­un­um. Að þessu sinni van­rækslu og mis­kunn­ar­lausu ofbeldi á fötl­uðu fólki, jafn­vel litlum börn­um.

Þetta var heim­ili fólks­ins og þar dvöldu helst þau sem bjuggu við versta félags­lega stöðu; með veikast bak­land. Það sem átti að vera öruggt skjól við­kvæmra ein­stak­linga, varð að hel­víti fyrir marga. Það er auð­vitað þyngra en tárum taki að svona nokkuð geti hafa gerst. Þrátt fyrir að lög og reglu­gerðir ættu að hindra slíkt virð­ist eft­ir­litið hafa mis­farist full­kom­lega. Sam­fé­lagið okkar brást þeim sem síst skyldi; fólki sem stóð ein­stak­lega höllum fæti og gat enga björg sér veitt.

Að sjálf­sögðu á að greiða þeim ein­stak­lingum sem enn lifa ríf­legar sann­girn­is­bæt­ur, þótt vit­an­lega verði aldrei hægt að bæta fyrir það sem gerð­is­t. 

Auglýsing

Í við­tali á Rúv við fyrr­ver­andi for­mann Þroska­hjálp­ar, Gerði Aagot Árna­dótt­ur, sem bað um að skýrslan um Kópa­vogs­hæli yrði unn­in, sagði hún: „Það er brotið á fötl­uðum börnum og fólki, ekki verið að veita þá þjón­ustu sem þarf og það eru alveg sömu afsak­anir og þá: skortur á fjár­magni, skortur á starfs­fólki, rétt­inda­gæslan er ekki tryggð og eft­ir­lit með þjón­ust­unni er ekki í lagi. Þessir ein­stak­lingar í dag njóta ekki sömu mann­rétt­inda og annað fólk og það er algjör­lega óásætt­an­leg staða.“ Það er ljóst að við eigum enn langt í land til að tryggja rétt­indi fatl­aðs fólks og skapa þeim tæki­færi til að lifa sjálf­stæðu líf­i. 

Það væri því bragur að því að Alþingi lög­festi á yfir­stand­andi þingi áður stað­festan samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um fatlað fólk og kláraði inn­leið­ing­ar­ferl­ið. Við sjáum skýrt í þessu máli að það er þó engan veg­inn nóg að sam­þykkja lög og regl­ur. Þeim verður að fylgja eftir með auknu eft­ir­liti.

Fyrr­nefnd atriði eru hluti af til­lögum Vist­heim­il­is­nefndar til úrbóta. Þar er að finna fleiri til­lögur m.a. um vernd barna þegar grunur er um beit­ingu ofbeld­is, að fólki sé búið hús­næði við hæfi sem upp­fylli laga­skil­yrði og lögð verði áhersla á afgreiðslu þings­á­lykt­unar um stefnu og fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum fatl­aðs fólks fyrir árin 2017–2021. Þing­menn verða að skoða þessar til­lögur ofan í kjöl­in, taka þarf afstöðu til þeirra fljótt og örugg­lega og finna fjár­magn til þess að hægt sé að fram­kvæma nauð­syn­legar aðgerð­ir. 

Enn eiga margir heim­ili sitt á stofn­un­um, sam­býlum og íbúða­ein­ingum sem eru rekin af hinu opin­bera eða með fjár­veit­ingum það­an. Þetta á m.a. við um marga fatl­aða og aldr­aða. Nú þurfa allir 63 þing­menn­irnir að taka saman höndum og vinna að bættum kjörum og aðstæðum þess­ara hópa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None