Eru kosningar tilgangslausar?

Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir hvetur Íslendinga til að fjölmenna á kjörstað í kosningunum sem eru framundan. Annars muni ekkert breytast.

Auglýsing

Í dag heyr­ast margar raddir þess efn­is, sér­stak­lega hjá ungu fólki, að það sé til einskis að kjósa og því ætli þau sér að sitja hjá í kom­andi Alþing­is­kosn­ing­um. Kosn­inga­þreyta er skilj­an­leg í þjóð­fé­lagi þar sem gengið er til kosn­inga í þriðja skiptið á fjórum árum. Hins vegar má ekki gleyma því að kosn­inga­rétt­ur­inn er eitt það dýr­mætasta sem við eig­um.

Ég er nýkomin heim frá Barcelona þar sem Kata­lón­íu­menn berj­ast fyrir því að mega kjósa um sjálf­stæði frá Spáni. Rík­is­stjórnin á Spáni hefur gengið langt í að koma í veg fyrir að kosn­ing­arnar muni eiga sér stað. Á annan tug kata­lónskra emb­ætt­is­manna hafa verið hand­tekn­ir, kjör­seðlar og önnur kjör­gögn gerð upp­tæk og mót­mæli bönn­uð. Auk þess hafa yfir­völd í Madrid tekið yfir stjórn hér­aðs­lög­regl­unnar í Kata­lóníu (cmossos desqu­adra), en slíkt hefur ekki gerst síðan á tímum ein­ræð­is­herr­ans Franco. Þjóð­ar­lög­reglan hefur verið send á stað­inn í þeim til­gangi að koma í veg fyrir kosn­ing­ar, kjós­endum er hótað hand­töku ef þeir taka þátt og for­seta hér­aðs­ins, sem og rík­is­lög­reglu­stjóra o.fl. hand­höfum yfir­valds hefur verið hótað sak­sókn ef þeir koma ekki í veg fyrir kosn­ing­arn­ar. Samt ætlar fólk að mæta. Samt ætlar fólk að kjósa. Kata­lónskur vinur minn sagði að hann ætl­aði að mæta jafn­vel þó hann ætl­aði að kjósa nei, því honum fannst mik­il­vægt að sýna afstöðu til þess hve mik­il­vægur kosn­inga­rétt­ur­inn væri. 

Spánn er vest­rænt Evr­ópu­ríki og er aðili að ESB. Þetta þýðir að kosn­inga­réttur er ekki sjálf­sagð­ur, ekki einu sinni hérna í hinum vest­ræna, frjálsa heimi. Það að fólki finn­ist hann lít­ils virði dregur úr þeirri kjöl­festu sem kosn­inga­réttur ætti að vera í hverju sam­fé­lagi og eykur líkur á ger­ræð­is­legum ákvörð­unum yfir­valda ef fólkið lætur sig ekki málin varða. 

Auglýsing

Barcelona er ein­ungis nær­tækt dæmi, víða í heim­inum mega ein­stak­lingar ekki kjósa, ef þú ert kona máttu ekki kjósa, ef þú til­heyrir til­teknum þjóð­fé­lags­hóp máttu ekki kjósa og sums staðar er ein­fald­lega ekki í boði að kjósa yfir höf­uð. 

Brexit er svo dæmi um hvað ger­ist ef ungt fólk lætur málin sig ekki varða. Met­lág þátt­taka ungs fólks var í þeim kosn­ing­um, en 70% af ungu fólki sem mætti kusu á móti. Það má spyrja að leikslokum ef fleira ungt fólk hefði mætt og kos­ið.

Kosn­inga­réttur er grund­vall­ar­réttur í lýð­ræð­is­ríki og það er mik­il­vægt að fólk láti raddir sínar heyr­ast með þessum hætti. Þó þér lít­ist ekki á neinn flokk get­urðu allt eins valið skásta kost­inn, nú eða engan og skilað þar með auðu. Aðal­at­riðið að fólk nýti sér þennan grund­vall­ar­rétt og láti í sér heyra. Þetta er helsta vald fólks­ins gagn­vart þing­inu, ÞÚ hefur val um hver situr á þingi. 

Ef Kata­lónar ætla að mæta til að kjósa þótt þeir eigi það á hættu að vera hand­tekn­ir, jafn­vel þó þeir ætli að kjósa nei eða skila auðu, þá geta Íslend­ingar vel fjöl­mennt á næsta kjör­stað og kosið með sinni sann­fær­ingu. Ann­ars breyt­ist ekk­ert.

#ÉgKý­s2017

Höf­undur er alþjóða­full­trúi Ung­liða­hreyf­ingar Við­reisnar og full­trúi Lands­sam­bands Ung­menna­fé­laga í Inn­flytj­enda- og mann­réttinda­ráði Evr­ópu Unga Fólks­ins (YFJ)

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar