Kynferðisofbeldi í fortíð og framtíð

Auður Kolbrá Birgisdóttir segist vera í framboði fyrir Bjarta framtíð vegna þess að það sé flokkur sem leggur áherslu á heiðarleg vinnubrögð. Það séu ekki allir búnir að gleyma ástæðu þess að ríkisstjórnin sprakk.

Auglýsing

Björt Fram­tíð er ekki búin að gleyma af hverju rík­is­stjórnin sprakk. Rík­is­stjórnin sprakk út af sjálf­krafa leynd­ar­hyggju og vinnu­brögðum sem allt of lengi hefur þekkst í íslenskum stjórn­mál­um. 

Sam­fé­lagið sjálft hefur verið á allt annarri veg­ferð. Með átökum á borð við Druslu­göng­una, #höf­um­hátt, #þögg­un, #kon­urtala, o.fl. hafa þolendur gripið málin í eigin hendur og sagt kerf­inu stríð á hend­ur. Ég þakka á hverju ári stofn­endum Druslu­göng­unnar fyrir að hafa veitt mér þann styrk að segja bless við skömm­ina sem hafði fylgt mér í 10 ár í kjöl­far nauðg­un­ar. Allt í einu leið mér eins og ég væri ekki ein í heim­in­um, væri ekki lengur skítug og mætti tala um það sem hafði komið fyrir mig. Ég varð frjáls. 

Miklar breyt­ing hafa átt sér stað und­an­farin ár í rétt­ar­vörslu­kerf­inu til hins betra, t.d. með til­komu Bjark­ar­hlíðar sem er mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis sem veitir stuðn­ing og ráð­gjöf en það þarf að gera bet­ur. Ekki er öll brot kærð til lög­reglu og aðeins brot af þeim sem eru kærð kom­ast áfram í kerf­inu. Björt fram­tíð vill sjá: 

Auglýsing
  • Staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi / hrelliklám skil­greint í lög­um.

Björt Fram­tíð hefur tvisvar lagt fram frum­varp þessi efnis og var það sér­stak­lega tekið fram í stjórn­ar­sátt­mála síð­ustu rík­is­stjórnar en dóms­mála­ráð­herra taldi óþarfi að standa við stjórn­ar­sátt­mál­ann. Ég er ekki sam­mála dóms­mála­ráð­herra um að ákvæði hegn­ing­ar­laga um blygð­un­ar­sem­is­brot nái nægi­lega vel yfir þessi brot. 

  • Styrk­ing á rétt­ar­stöðu brota­þola.

Í dag hafa brota­þolar ein­ungis rétt­ar­stöðu vitnis í saka­mál­um. Því viljum við breyta. 

Stytt­ing á máls­með­ferð­ar­tíma.

  • Stytt­ing á máls­með­ferð­ar­tíma.

Það getur tekið mörg ár frá því kyn­ferð­is­of­beldi er kært til lög­reglu og þangað til dómur fellur í mál­inu. Það er að sjálf­sögðu óvið­un­andi.

  • For­varnir og fræðsla

Við getum ekki látið eins og fjöldi kyn­ferð­is­brota sé bara eðli­legur fylgi­fiskur sam­fé­lags­ins. Við þurfum að bæta okkur í for­vörnum og fræðslu til að reyna koma í veg fyrir að brotin séu fram­in. Það þarf að gefa aðstand­endum þolenda og ger­enda verk­færi til að taka við upp­lýs­ingum um ofbeldi. Aðstand­endur verða oft svo van­máttugir og orð­lausir þegar svona mál koma upp og þar að leið­andi verður skömm og þöggun ríkj­andi.

  • Umræða um refs­ingar og virk úrræði fyrir ger­endur

Við þurfum líka að taka sam­talið um til­gang refs­inga og hverju við viljum að refs­ing skili inn í sam­fé­lag­ið. Við verðum að horfast í augu við að ger­endur eru ekki alltaf skrímsli en þeir bera ábyrgð á sínum gjörð­um, hana þarf að axla. Kerfið þarf svo að bjóða upp á virk úrræði fyrir ger­endur sem vilja taka á sínum mál­um.

Ég er í fram­boði fyrir Bjarta Fram­tíð því það er flokkur sem leggur áherslu á heið­ar­leg vinnu­brögð. Gerum for­tíð­inni heið­ar­leg skil og vinnum í átt að ofbeld­is­lausri fram­tíð. Það eru ekki allir búnir að gleyma ástæðu þess að rík­is­stjórnin sprakk, alla­vega ekki ég. 



Höf­undur er lög­maður og situr 2. sæti á lista Bjartrar fram­tíðar í Reykja­vík norð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar