Dreifing ferðamanna

Er okkur alveg fyrirmunað að fjárfesta til framtíðar?

Auglýsing

Dæmi.

Við tölum um mik­il­vægi dreif­ingu ferða­manna og þegar tæki­færið kemur erum við ekki til­búin nú síð­ast koma það ber­lega í ljós þar sem blind­flugs­bún­aður er ekki til staðar á Akur­eyr­ar­flug­velli.

Vænt­an­lega hefur ein­hverjum snill­ingum fund­ist það bruðl að setja upp þennan búnað áður en reglu­legt flug hæf­ist.

Því miður virð­ist mér kerfið ekk­ert vera óskap­lega stressað á því að fjár­festa í innviðum og það á ekki sýst við út á landi, ég hef margoft heyrt aðila að norðan tala um mik­il­vægi þess að fá blind­flugs­búnað á flug­völl­inn og núna erum við heldur betur minnt á mik­il­vægi þessa bún­að­ar.

Auglýsing

Góðu frétt­irnar virð­ast vera þær að það á að koma þessum bún­aði upp en það mun taka 8-9 mán­uði og það eiga ennþá 10 flug eftir að koma þangað í vet­ur. Von­andi munu þau flug ganga vel og öll geta lent á Akur­eyri, en maður spyr sig af hverju í ósköp­unum var ekki fjár­fest í þessum bún­aði mikið fyrr? Við erum að tala um búnað sem kostar um 70-100 milj­ónir sem er ekki mikið þegar horft er á hags­mun­ina sem eru í húfi.

Annað dæmi.

Fyrir stuttu var frétt sem fjall­aði um að aukið fjár­magn yrðir sett í vet­ar­þjón­ustu vega, sem voru góðar frétt­ir. Það sem var aftur á móti ekki í lagi við þá frétt var að ekki var sett króna í þessa þjón­ustu á Aust­ur­landi einn fjórð­unga. Rökin fyrir því voru "að umferð væri ekki nægj­an­lega mik­il, en ef hún myndi aukast yrði það mögu­lega end­ur­skoð­að".

Aust­ur­land er sá fjórð­ungur sem er lengst frá einu gátt ferða­manna inn í land­ið, þetta er sá fjórð­ungur á Þjóð­vegi 1 sem fæstir ferða­manna koma til, þetta er sá fjórð­ungur sem býr við hvað léleg­asta ­vega­kerf­i lands­ins og þetta er sá fjórð­ungur sem skal ekki fá aukið fjár­magn til að styrkja vetr­ar­þjón­ustu? 

Hvað fær fólk til að kom­ast að svona nið­ur­stöðu?  Það er alveg ljóst að ekki var hún fengin með því að tala við aðila í ferða­þjón­ustu á Aust­ur­landi, en það eru ekki nema nokkrir mán­uðir síðan aðilar inn­an SAF á Aust­ur­landi unnu minn­is­blað fyrir fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi ráð­herra ferða­mála þar sem sér­stak­lega var talað um mik­il­vægi þess að auka vetr­ar­þjón­ustu á vegum í fjórð­ungn­um.

Mér finnst aug­ljóst að þeir sem stjórna og taka svona ákvarð­anir skilja ekki hversu mik­il­væg er að fjár­festa til fram­tíð­ar. Það er mik­il­vægt að þjón­ustan og aðstaðan sé til staðar til að skapa eft­ir­spurn, og þegar eft­ir­spurn er til staðar verðum við að geta sinnt henni almenni­lega.

Dreif­ing ferða­manna um landið snýst meðal ann­ars um að skapa traust um að þeir kom­ist þangað sem þeir ætla sér, núver­andi stefna fjár­fest­inga­leysis skapar ekki það traust og er því ekki fallin til að dreifa ferða­mönnum um land­ið.

Höf­undur er ferða­þjón­ustu­að­ili á Aust­ur­landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar