Réttarríkið sigrar

Jón Ólafsson skrifar um nýfallinn dóm hæstaréttar í máli Glitnis HoldCo gegn Stundinni.

Auglýsing

Þegar við hugsum um lög og reglur og notkun þeirra í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi spyrjum við ekki um leiðir rík­is­valds­ins til að beita lögum til að ná ákveðnum mark­mið­um. Aðal­at­riðið er nefni­lega að lög sam­fé­lags­ins tryggi það rétt­ar­um­hverfi sem borg­ur­unum er nauð­syn­legt til að lifa frið­sælu lífi, geta athafnað sig að vild, tjáð sig, skipst á skoð­unum og, ekki síst, í öryggi um að yfir­völd eða sterkir aðilar í sam­fé­lag­inu geti ekki beitt afls­munum til að þjóna sér­hags­munum fram yfir hag almenn­ings.

Þegar sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík féllst á þá kröfu Glitnis HoldCo að gera lög­bann á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar um við­skipti þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra sáu sem betur fer lang­flestir það sem sýslu­maður ann­að­hvort sá ekki eða vildi ekki sjá: Að lög­bannið var ein­fald­lega árás á rétt­ar­ríkið og þar með árás á grund­vall­ar­gildi sam­fé­lags­ins.

Það kemur því engum á óvart að Hér­aðs­dómur hafni kröfu um að stað­festa lög­bann­ið. Ráð­gátan í mál­inu er eftir sem áður sú hvernig Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík gat kom­ist að þeirri niðu­stöðu að sér bæri að fall­ast á lög­banns­kröf­una. Skýr­ingar á því er ekki að finna í gerða­bók emb­ætt­is­ins, eins og bent er á í dómnum – þar kemur ekk­ert fram um hvers vegna sýslu­maður hafn­aði rök­studdum mót­mælum Stund­ar­innar og Reykja­vík Media við lög­bann­inu.

Auglýsing

Því miður kann að vera að fyr­ir­tækið sem kröf­una ger­ir, Glitnir HoldCo hafi fengið það út úr mál­inu sem það ætl­aði sér þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu. Fyr­ir­tæk­inu tókst að stöðva umfjöllun byggða á þeim gögnum sem lög­bannskrafan náði til og kannski telja menn þess virði að hafa komið í veg fyrir umfjöllun í meira en þrjá mán­uði miðað við þann kostnað sem í var lag­t. Af­hjúp­aður er full­trúi yfir­valda í mál­inu – Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík. Hinn almenni borg­ari hlýtur hins vegar að spyrja sig hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir að það end­ur­taki sig að full­trúi yfir­valda taki sér stöðu með stór­fyr­ir­tæki gegn almenn­ingi og beiti lög­unum gegn aug­ljósum rétt­indum og hags­munum almenn­ings. Því það er ógnun við rétt­ar­rík­ið.

Höf­undur er for­maður Gagn­sæ­is, félags gegn spill­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar