Nýtt hrun á teikniborðinu

Sigurjón Benediktsson hefur áhyggjur.

Auglýsing

Það er deg­inum ljós­ara að í orma­gryfju auð­jöfr­anna er verið að und­ir­búa næstu ráns­her­ferð á hendur almenn­ingi á Íslandi. Tæki­færið til að tappa vel af líf­eyr­is­sjóð­um, bönkum og eignum almenn­ings nálg­ast óðum. Allt klárt í næstu bylgju gjald­þrota, atvinnu­miss­is, eymdar og örviln­un­ar. Með gjöf rík­is­ins á Arion banka til ein­hverra aðila, sem eng­inn stjórn­mála­maður vill vita hvort heitir Ólafur eða Björgólf­ur, pétur eða páll, er verið að þung­vopna ræn­ingj­ana. Veislan er fyrir suma, aðrir borga.

Má ekki segja frá?

Fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­iðn­aði sem eru flest rekin með svörtu vinnu­afli á launum undir lág­mark­s­töxt­um, raka til sín lánsfé úr bönk­un­um, skuldir hrann­ast upp, eig­endur og vild­ar­vinir kaupa ódýran gjald­eyri sem komið er úr landi sem skjótast, og svo telja auð­jöfr­arnir niður að núll­inu. Núll­inu þegar gengið hryn­ur, bank­arnir tómir, fyr­ir­tækin skilin eftir alls­laus og yfir­skuld­sett. Ein­hvern veg­inn kann­ast maður við aðferð­irn­ar. Látið er líta út fyrir að allt sé í blóma. Þegar í raun er eng­inn jarð­vegur eftir og frostkuld­inn sleikir nakta jörð.

Hvar er þjóð­ar­auð­ur­inn?

Fram­legðin í íslensku atvinnu­lífi er ekki mik­il. Pen­ingar hlað­ast aftur á móti upp í bönkum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum til notk­unar fyrir þá sem hafa skammtað sér for­rétt­indi á kostnað almenn­ings. Allur þessi banka­auður er í raun geld­fé. Brask banka og fjár­mála­fyr­ir­tækja með eignir , lönd og líf­eyr­is­sjóði er án alls eft­ir­lits og aðeins örfáir útvaldir hafa þar aðkomu. Gömlu útgerð­ar­furst­arnir eru bara smá­seiði miðað við hina nýju stétt auð­jöfra sem síð­asta hrun ól af sér.

Auglýsing

Börnin okk­ar...

Viljum við að börnin okk­ar, barna­börnin okk­ar, vinir og vanda­menn þurfi að fara í gegnum þetta hel­víti, end­ur­tekn­ingu á 2008? Er eng­inn, alls eng­inn, nógu hug­aður til að fletta ofan af glæpa­lýðn­um, halda þeim frá ráns­fengnum sem þeir renna hýru auga til, stöðva þessa geð­veiki. Erum við orðin svo spillt og sjálfselsk, að við ætlum aðeins að horfa á, bjarga eigin skinni og liggja hund­flat­ir. Hvar eruð þið hvunn­dags­hetj­urnar?

Taktu pen­ing­ana þína...

Ég hvet alla lög­hlýðna borg­ara til að skipta alls ekki við Arion banka, panta sem mest hjá Ali Express og versla hjá Costco eða kaup­mann­inum á horn­inu. Skítugar krumlur auð­jöfr­anna eru alls staðar ann­ars staðar í verslun og við­skipt­um, hvert sem litið er. Þeir sem eru nú þegar ofur­seldir leigu­okri fast­eigna­fé­lag­anna ættu að kanna hvað önnur lönd gera í hús­næð­is­mál­um. Í Nor­egi er hús­næð­is­lán á 1.9% vöxt­um. Gott, dug­legt og heið­ar­legt fólk fær vinnu í öðrum lönd­um. Ekki fljúga út með hvaða flug­fé­lagi sem er. Ræn­ingj­arnir eru víða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar