Gæðin í Garðabæ

Oddviti Garðabæjarlistans kallar eftir því að mennskunni verði gefin meiri gaumur í sveitarfélaginu og að allir verði látnir skipta þar máli. Líf og lífsgæði íbúa séu mikilvægir þættir, ekki síður en rekstrartölur.

Auglýsing

Garða­bær hefur um langt skeið staðið að val­frelsi for­eldra og barna um þann skóla sem börn sækja innan sveit­ar­fé­lags­ins óháð búsetu. Sam­hliða því hefur Garða­bær einnig staðið með fjöl­breyttu rekstr­ar­formi á leik- og grunn­skóla­stigi til þess m.a. að auka fjöl­breytni og stuðla að nýsköpun í fag­starfi skóla. Garða­bæj­ar­list­inn styður þessa sýn heils­hugar en leggur um leið á það áherslu að tekið sé utan um þá þætti sem snúa að þeim nei­kvæðu áhrifum sem val­frelsið eitt og sér getur haft.

Val­frelsi og vel­ferð

Val­frelsið má aldrei verða til þess að ýta undir þá hegðun okkar að flýja það óþægi­lega eða þann vanda sem upp kemur í til að mynda skóla­sam­fé­lag­inu eða þeim fjöl­breyti­leika sem skóla­sam­fé­lag býr yfir þar sem ein­stak­lingar með alls kyns þarfir eiga að fá að njóta sín. Fötluð börn og ung­menni eru þar ekki und­an­skilin né heldur sam­skipta­vanda­mál sem eiga sína verstu birt­ing­ar­mynd í því sem ein­elti er.

Garða­bæj­ar­list­inn leggur áherslu á og ætlar að taka ábyrgð þegar kemur að þessum mik­il­væga mála­flokki sem menntun og vel­ferð er og gerir kröfum um að val­frelsi hafi jákvæð áhrif fyrir alla ekki bara suma. Til þess að svo megi verða er ekki hægt að horfa fram hjá vel­ferð­ar­þjón­ust­unni, þjón­ustu við börn og ung­menni með sér­þarfir af hvaða tagi sem er. Garða­bæj­ar­list­inn ætlar að styðja við snemmtæka íhlutun þannig að bregð­ast megi hratt og örugg­lega við þeim aðstæðum sem upp koma þar sem tekið er af ábyrgð á þeim verk­efnum sem þarf að leysa innan hvers skóla­sam­fé­lags. Hvort heldur sem það varðar náms­legan eða félags­legan stuðn­ing, vegna stað­bund­inna ástæðna eða langvar­andi aðstæðna eins og fötl­un­ar.

Auglýsing

For­gangs­röðun og fram­tíð­ar­sýn

Garða­bæj­ar­list­inn hefur þá sýn að þessir þættir verði ein­fald­lega að vinna saman til þess að ná megi alvöru árangri. Val­frelsið eitt og sér gefur okkur alltaf minni árangur eins og í flestum til­vikum þegar hlekkur í mik­il­vægri keðju er tek­inn í burtu.

Það þarf að gefa í og gera betur í allri þjón­ustu er varðar vel­ferð barna og ung­menna. Skóla­kerfið er sú grunn­stoð þar sem þjón­ustan er veitt og því viljum við í Garða­bæj­ar­list­anum tryggja að sam­spil þess­ara þátta verði sem mest og afkoman meiri gæði fyrir alla. Þess vegna viljum við for­gangs­raða í þágu vel­ferðar með því að leggja af stað í stefnu­mót­un­ar­vinnu um menntun án aðgrein­ingar og fram­kvæmd­ar­á­ætlun í sam­ráði við þá sem að mál­efnum barna og ung­menna koma.

Gerum bara bet­ur. Rekstr­ar­tölur eru mik­il­vægar og svo á einnig um líf og lífs­gæði íbúa.

Mennsk­una upp á borð og látum alla skipta máli í Garða­bæ.

Höf­undur er odd­viti Garða­bæj­ar­list­ans fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Garða­bæ.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar